„Sunnudagsmorgunsálmur. Lag: Dagur er dýrka ber …“
„Sólin skín, sála mín …“
4 vers.
„Kvöldsálmurinn. Með sama lagi“
„Kvöldar fljótt kemur nón …“
5 vers.
„Mánudagsmorgunsálmur“
„Dagar allir þig, drottinn, prísi …“
5 vers.
„Kvöldsálmurinn“
„Nú er dagurinn kominn að kvöldi …“
7 vers.
„Morgunsálmur á þriðjudögum. Lag: Eitt á enda vors l´lifs er runnið …“
„Nú er dagur nú fer sól að lýsa …“
4 vers.
„Kvöldsálmurinn“
„Hvíldir boðast húmið yfir dregur …“
3 vers.
„Miðvikudagsmorgunsálmur. Lag: Ó Guð, heilagur, heilagur …“
„Lof sé þér, Guð, sem leiddir mig …“
4 vers.
„Kvöldsálmurinn“
„Enn hefur náðin þín óþreytt …“
4 vers.
„Fimmtudagsmorgunsálmur. Lag: Heiðrum vér Guð af hug og sál …“
„Nú hef eg mínum brugðið blund …“
4 vers.
„Kvöldsálmurinn“
„Líður óðum mitt lífsins strik …“
4 vers.
„Föstudagsmorgunsálmur. Lag: Faðir vor sem á himnum ert …“
„Ó, þú hátignin eilíflig …“
4 vers.
„Kvöldsálmurinn“
„Tíðin er sem á fleygiferð …“
6 vers.
„Morgunsálmur á laugardögum. Lag: Jesú linar opnu undir …“
„Loks mitt hold af værðum vaknar …“
5 vers.
„Kvöldsálmurinn. Sama lag“
„Minn skal ævidagur dvína …“
6 vers.
„Bænarvers um guðlega handleiðslu og náð. Lag: Hver veit hvað fjarri er ævi endi …“
„Fyrir þitt veldi, drottinn drottna …“
4 vers.
Nýlega blaðmerkt með blýanti.
Handritið er mjög illa farið, blöð morkin á jöðrum og hefur texti skerst af þeim sökum.
Fremst og aftast eru blöð laus úr bandi.
Óþekktur skrifari. Sálmar með kansellíbrotaskrift en lagboðar og aftasti efnisþátturinn (frá 12v) með fljótaskrift.
Aftast (bl. 16v) stendur ... Hafnar maí 1850.
Á saurbl. fremst, recto, eru nokkrar tölur og samlagning.
Á saurbl. fremst, verso, er líklega hluti úr sendibréfi, dags. 16. maí 182? Nafnið John Johnsen á Jaringer? kemur fyrir. Undirskrift ólæsileg en byrjar á J. S.
Leifar af spjaldbl. fremst með óþekktu textabroti, hugsanlega úr sendibréfi. Bl. er að hluta laust frá bandi og eru leifar af rauðu innsigli á innri hlið.
Leifar af spjaldbl. aftast með óþekktu textabroti, líklega úr sama sendibréfi og spjaldbl. fremst.
Band (125 mm x 76 mm x 3 mm). Bundið í skinn og saumað með hamptaumi. Spjaldblöð morkin og að hluta laus frá bandi.
Handritið liggur í grárri pappaöskju.
Handritið var skrifað á Íslandi, líklega um miðja 19. öld.
ÞS skráði í nóvember og desember 2018.