Detaljer om håndskriftet

SÁM 104

Rímur ; Island, 1850-1896

Fuld titel

Rímur af Flóresi og sonum hans, orktar af Guðmundi Jónssyni á Grenivík í Grímsey.

Tekstens sprog
islandsk

Indhold

(1r-86v (bls. 1-172))
Rímur af Flóresi og sonum hans
Forfatter

Guðmundur Jónsson, Grenivík í Grímsey

Rubrik

1ta ríma, ferskeytt

Incipit

Hleiðólfs læt ég hlunna jór …

Explicit

… og allra þjóða smiður.

Bemærkning

Nítján rímur (sjá nánar Rímnatal 1966: 140-141).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír.
Antal blade
i + 86 blöð (165-166 mm x 99-100 mm).
Foliering

Upprunalegt blaðsíðutal: 1-172; blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-86.

Lægfordeling

Ellefu kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 49-56, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 57-64, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 65-72, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 73-80, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 81-86, 3 tvinn.
Númer kvers er tilgreint með viðeigandi tölugildi innan sviga á neðri spássíu við upphaf kvers (sbr. (2) sjá blað 9r, (3) sjá blað 17r o.s.frv. Kver I er ónúmerað og ekkert kver í hdr. er númer 11 en það síðasta er nr. 12 (sbr. blað 81r).

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 137-142 mm x 82-85 mm.
  • Línufjöldi er ca 22-24.
  • Kver eru númeruð (sjá nánar: Kveraskipan: Aths.).

Tilstand
.

  • Rifnað hefur upp í tvinn í sumum kverum (sjá t.d. kver I (blöð 1-8)).
  • Blað 26 er laust úr bandinu.
  • Líndúkur á hornum er horfinn og orðinn slitinn á kili; pappír á spjöldum er snjáður og nánast horfinn af aftara kápuspjaldi.

Skrifttype

Með einni hendi; skrifari er hugsanlega Jón Jóhannesson í Hleiðrargarði(?); sama rithönd virðist vera á nafninu á fremra saurblaði og á texta handritsins (sjá t.d. J á saurblaðinu í Jón Jóhannesson og Jónssyni á blaði 1r ); snarhönd.Hugsanlega sami skrifari sem skrifar SÁM 104 SÁM 105 og SÁM 108.

Udsmykning

Fyrirsögn og fyrsta lína rímu er með stærra letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 10r og 48v).

Tilføjelser

  • Framan á fremra saurblaði stendur: Jón Jóhannesson í Hleiðrargarði og ártalið 1901 skrifað með annarri hönd og öðru bleki.
  • Stimpill Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar H. Steinmann er bæði á fremra saurblaði og blaði 1r.

Indbinding

Band (170 mm x 100 mm x 14 mm): Pappaspjöld eru klædd gul- og grænyrjóttum marmarapappír; grænn líndúkur er á kili, límdur aðeins inn á spjaldapappírinn; kæðning á spjaldhornum er horfin.

Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 99, 100, 101, 102, 103, 105 og 106.

Vedlagt materiale
Afhendingarlisti Kvæðamannafélagsins Iðunnar, dagsettur 15. september 2008. Miði með númeri handrits á afhendingarlista er einnig meðfylgjandi.

Historie og herkomst

Herkomst

Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á síðari hluta nítjándu aldar (Jón Jóhannesson, Hleiðrargarði1896 (sbr. http://www.herak.is/static/files/Skjalaskrar/H%20skrar/H-11.pdf)) .

Proveniens
Handritið er gjöf frá Kvæðamannafélaginu Iðunni; tölusett sem nr. 220 á afhendingarlista (sjá: Fylgigögn). Það var í safni Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar og líklega upphaflega í eigu Jóns Jóhannessonar í Hleiðargarði (sjá nánar: Spássíugreinar og aðrar viðbætur; Skrift).
Erhvervelse
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu þann 15. september 2008. Formleg afhending handritanna fór fram ári síðar, 15. september 2009, þegar Kvæðamannafélagið Iðunn fagnaði 80 ára afmæli sínu.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

VH skráði í september 2010.

[Metadata]
×
  • Land
  • Island
  • Sted
  • Reykjavík
  • Institution
  • Árni Magnússon-instituttet for islandske studier
  • Opbevaringssted
  • Handritasvið
  • Håndskriftsamling
  • Safn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Katalognummer
  • SÁM 104
  • Nøgleord
  • Rímur
  • XML
  • Vis som XML  
  • Bemærkninger
  • Send feedback om håndskriftet  

[Metadata]