Manuscript Detail

PDF
PDF

SÁM 98

Rímur ; Iceland, 1845

Full Title

Rímur af Finnboga ramma, orktar af Guðmundi Bergþórssyni nú að nýju uppskrifaðar anno MDCCCXXXXV af S.B.J S. og E.I D.

Language of Text
Icelandic

Contents

(1r-89v)
Rímur af Finnboga ramma
Rubric

1ta ríma

Incipit

Hleiðólfs renni eg hlunna glað …

Explicit

… við bekkinn ekki lengur.

Note

Tuttugu og fjórar rímur, ortar 1686 (sjá nánar Rímnatal 1966: 131-132).

Physical Description

Support
Pappír.
No. of leaves
iii + 89 blöð (168 mm x 100-103 mm).
Foliation
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-178.

Blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-89.

Collation

Ellefu kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 32-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-49, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver VII: blöð 50-57, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 58-65, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 66-73, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 74-81, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 82-89, 4 tvinn.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 138-152 mm x 88-95 mm.
  • Línufjöldi er ca 22-31.
  • Leturflötur er afmarkaður (með blýanti eða penna) við efri og ytri spássíur.
  • Síðutitill nær yfir opnu: Rímur af Finnboga Ramma (sjá t.d. blöð 54v-55r.

Condition
.

  • Bandið hefur að mestu orðið viðskila við bókina; hluti af fremra bókarspjaldi (ca 25 mm) úr tré, hangir við fremsta kverið á leifum af bókarþvengjunum. Búturinn er óklæddur. Fyrsta saurblaðið er aðeins bútur og morknað hefur af efri hornum hinna tveggja.
  • Kverin eru flest laus; undanskilin eru kver I og II sem hanga saman á tveimur bókarþvengjum.
  • Blöð eru blettótt og notkunarnúin.

Script

Þrír óþekktir skrifarar; sprettskrift.

Decoration

Fyrirsögn og fyrsta lína rímu er með stærra letri og settara en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 34v og 42r).

Additions

  • Annað saurblað er skorið úr bréfi sem Daníel Halldórsson undirritar. Niðurlag bréfsins og undirskrift Daníels liggja ofvent við texta bókarinnar.

Binding

Band (175 mm x 25 mm x 20 mm) er líklega frá síðari hluta 18. aldar. Eins og fram kemur í ástandslýsingu handrits hefur bandið að mestu orðið viðskila við bókina (sjá nánar: Ástand).

Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 99, 100, 101, 102, 103, 104, 105 og 106.

Accompanying Material
Afhendingarlisti Kvæðamannafélagsins Iðunnar, dagsettur September 15, 2008. Miði með númeri handrits á afhendingarlista er einnig meðfylgjandi.

History

Origin

Handritið var skrifað á Íslandi 1845 (sbr. titilsíðu).

Provenance
Það er gjöf frá Kvæðamannafélaginu Iðunni; tölusett sem nr. 214 á afhendingarlista (sjá: Fylgigögn). Það var í safni Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar en annars er lítið vitað um feril þess fyrir utan það sem stafirnir á titilsíðu og undirskriftin á saurblaðinu gætu hugsanlega gefið til kynna (sjá nánar: Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Acquisition
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu þann September 15, 2008. Formleg afhending handritanna fór fram ári síðar, September 15, 2009, þegar Kvæðamannafélagið Iðunn fagnaði 80 ára afmæli sínu.

Additional

Record History

VH skráði í September 2010.

Metadata
×

Metadata