Skráningarfærsla handrits

SÁM 80

Ritgerð um veðurfræði ; Ísland, 1735

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-21v)
Veðurfræði
Upphaf

… eður nóttu, sér mörg stjörnuskot eður flug …

Niðurlag

… þar Guð er allt í öllum.

Athugasemd

Vantar framan af.

Efnisorð
2 (22r-91v)
Compendicum cosmographicum et chronologium
Höfundur
Titill í handriti

Út af því Compendio Cosmographico er Hans Nansson gjörði og samsetti af bókum hálærðra manna um himin og jörð og lét á prenti útganga Anno 1633. Er hér það sérlegasta á íslensku útlagt af Gísla Bjarnasyni Pc. Anno 1640

Upphaf

Fyrir þetta orð veröld eður heimur …

Niðurlag

… jarðneska veröld með mikla dýrgripi, gull og ríkdóm.

Skrifaraklausa

Jörðin skiptist í fjóra parta sem kallast Evrópa, Asía, Afríka og sú nýja veröld Ameríka. Endir. Jón Guðmundsson.

Ábyrgð

Þýðandi : Gísli Bjarnason

Athugasemd

Ritgerðin sjálf byrjar á bl. 25r en á undan fer formáli höfundar.

2.1 (22r-24v)
Formáli
Titill í handriti

Formáli Hans Nanssonar til sinnar bókar

Upphaf

Næst Guðs heilaga orði höfum vér …

Niðurlag

… sá sem þau stundar hann hefur list til þeirra.

Skrifaraklausa

1735

Baktitill

Þetta er sérlegasta út af formálanum Authoris

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 91 + ii blöð (156 +/- 2 mm x 100 +/- 2 mm).
Tölusetning blaða
Blöð handrits eru ótölusett.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 125-130 mm x 75-80 mm.
  • Línufjöldi er ca 18-19.
  • Griporð.

Ástand
Blöð hafa glatast framan af handritinu.
Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Guðmundssonar, fljótaskrift.

Skreytingar

Skrautlegur bókahnútur teiknaður á bl. 91v.

Band

Band frá 18. öld (156 mm x 112 mm x 20 mm). Bókfell með innábroti. Hamptaumar utan á kili og hafa verið límdir niður. Spjaldblöð og saurblöð úr prentaðri bók á latínu.

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1735 (sbr. bl. 24v).
Ferill
Handritið kom frá Kanada.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi eignaðist handritið 10. janúar 2007.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
ÞS skráði 28. júlí 2010.
Lýsigögn
×

Lýsigögn