Manuscript Detail

SÁM 72

Eddukvæði ; Iceland, 1743

Full Title

Edda Sæmundar prests hins fróða. Nú að nýju skrifuð af Árna Böðvarssyni, anno 1743. Edda Íslendinga. Samanskrifuð af spakvitrum Íslands fræðimeistara, Snorra Sturlusyni, með ágætum formála Guðmundar Andréssonar. Nú að nýju skrifuð af Árna Böðvarssyni, anno 1743.

Note
Akrabók

Contents

1 (3r-82v)
Edda
Rubric

Edda Íslendinga

Note

Fyrir aftan Eddu-efnið er viðbótarefni.

1.1 (3r-82v)
Fyrri partur Eddu
Note

Formálar, Gylfaginning og um Snorra Sturluson.

1.1.1 (3r-11v)
Formáli Guðmundar Andréssonar
Rubric

Formáli Snorra-Eddu samsettur af Guðmundi Andréssyni

Incipit

Þrennar finnast meiningar um það hvaðan Eddunafn hafi sín rök …

Explicit

… eftir fyrirsögn og formála sjálfs authoris Eddu, Snorra Sturlusonar

1.1.2 (12r)
Formáli Magnúsar Ólafssonar
Rubric

Edda Islandorum Anno Christi M.CC.XV. Primum conscripta per Snorronem Sturlæ. Filium Nomophylacem. Hvað Edda sé

Incipit

Edda er íþrótt af forndiktuðum fróðra manna dæmisögum og margfundnum heitum hlutanna, …

Explicit

… birtast með þeim formála eður Pologo sem eftir fylgir.

1.1.3 (12r-17r)
Prolougus Snorra-Eddu
Incipit

Almáttugur Guð skapaði í upphafi himin og jörð og alla þá hluti sem þeim fylgja …

Explicit

… að þeirra tunga Asíumanna varð eigin tunga um öll þessi lönd.

1.1.4 (17r-52r)
Gylfaginning
Rubric

Gylfaginning kap. 1 eður dæmisaga

Incipit

Gylfi kóngur réð þar löndum er nú heitir Svíþjóð …

Explicit

… svo sem sjá má og læra í seinna parti þessarar bókar, sem hér eftir fylgir.

Note

Fyrir neðan hefur verið skrifað með blýanti með seinni tíma hendi (sjá blað 52r).

1.1.5 (52v)
Um Snorra Sturluson
Rubric

Snorre Sturlæ Filius natus eft.

Incipit

Anno Christi 1179 …

Explicit

… cui nomen erat Urækia.

1.2 (53r-77r)
Annar partur Eddu
1.2.1 (53r-76r)
Um kenningar
Rubric

Um kenningar

Incipit

Í hinum fyrra partinum voru ritaðar þær frásögur af hvörjum teknar eru að fornu og nýju …

Explicit

… Þang eður þara má kenna gras eður skóg sjóar eður fjöru eður skerja. Item eng sjóar. Fínís. Fínis.

Colophon

Nú eru kenningar hér skrifaðar en kunni nokkuð til að vanta má síðar inn setja. Enda eg svo þessa bók þann 19. january anno 1743. Árni Böðvarsson.

Note

Skrifaraklausan er á blaði 76r.

1.2.2 (76v-77r)
Nokkrar fornvísur
Note

Á blað 77v sem annars er autt er skrifað: Þessa bók á eg undirskrifaður með réttu og hún er mér heimiluð af hennar réttum eiganda mr. Jóni Sigurðssyni, Hörðubóli þann June 12, 1832 […] J. Grímsson.Þessa bók Snorra- og Sæmundar-Eddur á eg undirskrifaður, J Grímsson 1832.

Text Class
2 (78r-135v)
Sæmundar-Edda
Rubric

Edda Sæmundar prests hins fróða

Note

Blað eða blöð virðast hafa glatast á milli blaða 132v-133r

2.1 (78r-82r)
Heiti
2.1.1 (78r-78v)
Óðinn; heiti hans, ætt og uppruni
Rubric

Hér segir fyrst um ætt Óðins frá Trojumönnum

2.1.2 (79r-79v)
Ásar og ásynjur
Rubric

Hér uppskrifast ásar og ásynjur

2.1.3 (80r)
Nöfn goða og gyðja
Rubric

Hér skrifast nöfn heiðingjanna …

2.1.4 (80v)
Nornanöfn
2.1.5 (80v-81r)
Dverganöfn
2.1.6 (81r)
Sverðaheiti
Rubric

Síðan teljast sverðaheiti

2.1.7 (81r-81v)
Skipaheiti
Rubric

Skrifa verður skipaheiti

2.1.8 (81v)
Sjókenningar
Rubric

Síðan teiknast sjókenningar

2.1.9 (81v-82r)
Sjávarheiti
Rubric

Þetta eru heiti á sjó

Colophon

Kenningar má finna í síðari parti Snorra-Eddu. Byrjast því partar eður kvæði þessarar bókar sem eftir fylgja.

Note

(Skrifaraklausan er á blaði 82r).

Heiti Óðins, ása og ásynja, goða og gyðja, nöfn dverga, skipa og sjávarheiti eru upplistuð í ofangreindum köflum; um heitin ásamt kenningum er fjallað í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu.

Svohljóðandi efnisyfirlit er á blaði 82v: Þetta eru partar eður Capita Sæmundar-Eddu sem eftir fylgja: Völuspá, Hávamál, Vafþrúðnismál, Grímnismál, Skírnisför, Hárbarsljóð [sic], Þór dró Miðgarðsorm eður Hymiskviða, Lokasenna, Þrymskviða eður Hamarsheimt, Alvísmál, Frá Sigurði, Regin og Hnikar, Heilræði Brynhildar við Sigurð, Brynhildur reið Selveg, Frá dauða Fáfnis, Hyndluljóð hin gömlu, Gátur Gests blinda / getspeki Heiðreks kóngs, Gróuljóð, Fjölvinsmál, Bjargbúaþáttur.

2.2 (83r-86v)
Völuspá
Incipit

Hljóðs bið eg allar helgar kindir …

Explicit

… nú mun hún sökkvast.

Note

Fimmtíu og níu erindi.

2.3 (86v-90v)
Völuspá
Rubric

Vaticinum Volæ [Seu Sibyllinum]

Incipit

Sileant omnes, Sanctæ creaturæ …

Explicit

… Níðhöggur funera, nunc ille terra dehiscet.

Note

Fimmtíu og níu erindi Völuspár á latínu.

2.4 (91r-106v)
Hávamál
Rubric

Hávamál en gömlu með þeirra appendice rúnacapitula af sjálfum Óðni kóngi ort og samsett

Note

Alls 165 erindi (138+27 (rúnakapituli)).

2.4.1 (91r-106v)
Hávamál
Incipit

Gáttir allar …

Explicit

… fold skal við flóði taka.

2.4.2 (91r-106v)
Hávamál
Rubric

Rúnakapituli

Incipit

Veit eg at eg hékk …

Explicit

… Heilir þeirs hlýddu.

2.5 (107r-109r)
Vafþrúðnismál
Rubric

Vafþrúðnismál

Incipit

Ráð þú mér nú Frigg …

Explicit

… Þú ert æ vísastur vera.

2.6 (109r-111v)
Grímnismál
Note

Lausamálskaflar eru meðfylgjandi kvæðinu í upphafi þess og lok.

2.6.1 (109r-111v)
Grímnismál - lausamál
Rubric

Frá sonum Hrauðungs konungs

Incipit

Hrauðungur kóngur átti tvo sonu …

Explicit

… Agnar var þar kóngur lengi síðan.

2.6.2 (109v-111v)
Grímnismál - kvæðið
Incipit

Heitur ertu hripuður …

Explicit

… allir af einum mér.

2.7 (111v-113r)
Skírnismál
Rubric

För Skírnis

Note

Lausamálskaflar eru í upphafi kvæðis og á milli vísna á tveimur - þremur stöðum.

2.7.1 (111v)
Skírnismál - lausamál
Incipit

Freyr sonur Njarðar …

Explicit

… Freyr stóð úti og kvaddi hann og spurði tíðinda og kvað:

2.7.2 (111v-113r)
Skírnismál - kvæðið
Incipit

Rístu nú Skírnir …

Explicit

… enn sjá hálf hýnótt.

2.8 (113r-114v)
Hárbarðsljóð
Rubric

Harbarsljóð

Note

Lausamálskafli er í upphafi kvæðis.

2.8.1 (113r)
Hárbarðsljóð - lausamál
Incipit

Þór fór úr austurvegi …

Explicit

… var ferjukarlinn með skipið. Þór kallaði:

2.8.2 (113r-114v)
Hárbarðsljóð - kvæðið
Incipit

Hver er sá sveinn sveina …

Explicit

… Far þú nú þars þig hafi allan gramir.

2.9 (114v-116r)
Hymiskviða
Rubric

Þór dró Miðgarðsorm

Incipit

Ár valtívar / veiðar námu …

Explicit

… ægis, eitt hörmeitið.

2.10 (116r-119r)
Lokasenna
Note

Lausamálskaflar eru í upphafi og lok kvæðis sem og á milli erinda á þremur stöðum.

2.10.1 (116r-119r)
Lokasenna - lausamál
Rubric

Frá Ægi og goðum

Incipit

Ægir er að öðru nafni hét Gymir …

Explicit

… Það eru nú kallaðir landskjálftar.

2.10.2 (116r-119r)
Lokasenna - kvæðið
Rubric

Lokasenna

Incipit

Seg þú það Eldir …

Explicit

…brenni þér á baki.

2.11 (119r-120v)
Þrymskviða
Rubric

Þrymskviða eður Hamarsheimt

Incipit

Reiður var þá Vingþór …

Explicit

… endur að hamri.

2.12 (120v-121v)
Alvíssmál
Rubric

Alvíssmál

Incipit

Bekki breiða / nú skal brúður með mér …

Explicit

… uppi ertu dvergur um dagaður. Nú skín sól í sali.

2.13 (121v-122v)
Reginsmál
Rubric

Frá Regin og Sigurði Fáfnisbana

Incipit

Kominn er hingað sonur Sigmundar…

Explicit

… og Hugin gladdi.

Note

Aðeins hluti kvæðisins, þ.e. erindi 13 og erindi 16-26 (sjá Eddukvæði útgáfa Gísla Sigurðssonar 1999: 202-206). Skrifari hefur aðlagað efnið eða í forriti hans hafa efnistök verið með þeim hætti að lausamáli virðist á sinn hátt ætlað að gefa frekari skýringu á því sem fyrr er frá greint í kvæðinu.

2.14 (122v-124r)
Sigurdrífumál
Note

Aðeins hluti kvæðisins, hefst í 5. erindi (sbr. Eddukvæði útgáfa Gísla Sigurðssonar 1999: 221-228). Niðurlag í lausu máli.

2.14.1 (122v-123v)
Sigurdrífumál - kvæðið
Rubric

Brynhildarljóð eður heilræði Brynhildar við Sigurð

Incipit

Bjór færi eg þér …

Explicit

… römm eru róg af risin.

Note

Sautján línur af niðurlagi kvæðisins eru ritaðar með annarri hendi á blaði 123v.

2.14.2 (122v-123v)
Sigurdrífumál - niðurlag
Incipit

Svo er sagt að Gjúkasynir sviku Sigurð í tryggðum …

Explicit

… hún lagði sig sverði til bana.

2.15 (124r-124v)
Helreið Brynhildar
Rubric

Brynhildur reið Helveg

2.15.1 (124r-124v)
Helreið Brynhildar - lausamál
Incipit

Eftir dauða Brynhildar …

Explicit

… þar er gýgur nokkur bjó. Gýgurin kvað:

2.15.2 (124r-124v)
Helreið Brynhildar - kvæðið
Incipit

Skaltu í gögnum ganga eigi …

Explicit

… gýgjar kyn

2.16 (124v-126r)
Guðrúnarkviða I
Rubric

Guðrúnarkviða

Note

Lausamálskafli er á undan og á eftir kvæðinu.

2.16.1 (124v-126r)
Guðrúnarkviða - lausamál
Incipit

Guðrún sat yfir Sigurði dauðum …

Explicit

… svo sem segir í Sigurðarkviðu inni skömmu.

2.16.2 (124v-126r)
Guðrúnarkviða - kvæðið
Incipit

Ár var það er Guðrún gerðist að deyja …

Explicit

… er hún sár um leit á Sigurði.

2.17 (126r-126v)
Fáfnismál
Rubric

Frá dauða Fáfnis

Colophon

Þetta hefði átt að skrifast fyrri.

Note

Skrifaraklausan er á blaði 126r.

Lausamálskafli er við upphaf kvæðisins. Kvæðið er ekki að fullu upp skrifað. Uppskriftinni lýkur við upphaf 23. erindis (sbr. Eddukvæði útgáfa Gísla Sigurðssonar 1999: 212, en þar eru erindin 44 (bls.208-218). Neðst á blaði 126v er eyða fyrir nokkrar línur.

2.17.1 (126r)
Fáfnismál - lausamál
Incipit

Sigurður hitti slóð Fáfnis á Gnitaheiði …

Explicit

… Sigurður hljóp úr gröfinni og sá hver þeirra annan. Fáfnir kvað:

2.17.2 (126r-126v)
Fáfnismál - kvæðið
Incipit

Sveinn og sveinn …

Explicit

… Fáfnir muni, þitt var nú meira megin.

2.18 (127r-128v)
Hyndluljóð
Rubric

Hyndluljóð hin gömlu

Incipit

Vaki mér meyja …

Explicit

… bið eg Óttari öll góð duga.

2.19 (128v-131v)
Heiðreks gátur
2.19.1 (128v-129r)
Gátur Gestumblinda - formáli
Rubric

Formáli að getspeki Heiðreks kóngs

Incipit

Heiðrekur hét kóngur ágætur …

Explicit

… Þá mælti Gestur:

2.19.2 (129r-131v)
Gátur Gestumblinda - kvæðið
Incipit

Hafa vildak / það í gær hafðak …

Explicit

… því ber hann stýfðan stert.

2.20 (131v-132v)
Grógaldur
Rubric

Gróuljóð er hún gól syni sínum áður en það Óðinn í helju hvarf og hún var dauð

Incipit

Vaki þú Gróa / vaki þú góð kona …

Explicit

… meðan þú mín orð of manst.

Note

Fyrri hluti Svipdagsmála; Fjölsvinnsmál eru talin til síðari hlutans (sjá lið 2.22)

2.21 (132v)
Baldurs draumar
Rubric

Vegtamskviða

Incipit

Senn voru æsir á þingi allir…

Explicit

… Hvað er manna, það mér ókunnra er mér hefir aukið erfitt …

Note

Kvæðið endar hér óheilt og það vantar í kvæðið frá fjórða vísuorði í fimmta erindi og til loka þess (í útgáfu Finns Jónssonar 1905, eru erindin fjórtán (bls. 169-173).

2.22 (133r-133v)
Fjölsvinnsmál
Incipit

Gífur heitir / en Gere annar …

Explicit

… nú er það satt / að við slíta skulum / ævialdri saman.

Note

Vantar framan af kvæðinu sem hefst skv. útgáfu Finns Jónssonar (1905) í hdr. í fjórtánda erindi (sjá bls. 213-221, Finnur Jónsson).

2.23 (134r-135v)
Grottasöngur
Incipit

Nú erum komnar / til kóngs húsa …

Explicit

… hafa fullstaðið / fljóð að moldri [sic?].

2.24 (136r-137v)
Bergbúaþáttur
Rubric

Bjargbúaþáttur

Note

Á eftir stuttum inngangskafla í lausu máli er dróttkveðið kvæði, oftast nefnt Hallmundarkviða og fylgja skýringar með. Í annarri gerð þáttarins þar sem vísurnar eru skrifaðar upp án skýringa (sbr. AM 564 a 4to) er lausamálsfrásögn sem er lengri og kvæðið er án skýringa (sjá nánar umfjöllun Þórhalls Vilmundarsonar 1991, Íslenzk fornrit XIII )

2.24.1 (136r)
Bergbúaþáttur - Inngangsorð
Incipit

Það er efni þessarar frásögu …

Explicit

… Hellir þessi fannst aldrei síðan.

2.24.2 (136r-137v)
Bergbúaþáttur - Hallmundarkviða
Incipit

Hrynur að heiða fenri …

Explicit

… ónyt, mikið víti / onyt, mikið víti.

Note

Fyrir neðan lokavísuna, eins og aðrar vísur kviðunnar, er útlegging hennar.

Text Class
2.25 (137v-138v)
Sonatorrek
Rubric

Kvæði Egils Skallagrímssonar er hann kallaði Sonartorrek [sic]

Incipit

Mjög erum tregt / tungu að hræra …

Explicit

… og óhryggur / heljar bíða.

Text Class
2.26 (138v-141r)
Höfuðlausn
Rubric

Kvæði Egils Skallagrímssonar nær hann leysti höfuð sitt á Norðymbralandi, anno 934. Eyrekur blóðöx og hirð hans heyrði á.

Incipit

Vestur fór eg um ver…

Explicit

… vagna vára / eður vili tára.

Colophon

Drápan er skrifuð eftir Runica Wormi.

Note

(Skrifaraklausan er á blaði 141r).

Text Class
2.27 (141r-144v)
Krákumál
Rubric

Ragnars kviða loðbrókar, skrifuð eftir Runica Wormi.

Incipit

Hjuggum vér með hjörvi …

Explicit

… læjandi skal eg deyja.

Colophon

Endir Loðbrókarkviðu

Note

(Skrifaraklausan er á blaði 144v). Fyrir neðan skrifaraklausuna stendur með annarri hendi: Þessi kviða kallast réttar Krákumál.

Text Class
2.28 (144r-144v)
Ýmis kvæði
Note

Efst á blaði 144r má hugsanlega lesa Úr sögu Hákons konungs gamla. Þetta er þó illlæsilegt þar sem fyrirsögn er skert vegna afskurðar blaðsins. Meðal þess sem þarna er að finna er kveðskapur Sturlu Þórðarsonar um hernað Hákons í Vermalandi, kvæði úr Orkneyingasögu o.fl.

Text Class
2.29 (146r)
Rúnastafróf
Rubric

Gamalt alfabet

Text Class
2.30 (146v-148v)
Nokkrar deilur
Rubric

Deilur nokkrar

Colophon

Þessar deilur skrifaði eg eftir gamalli skræðu en veit ei hvert að öllu réttar eru. Anno 1748 A: B: S:

Note

Efnið virðist tengjast merkingu rúnanna.

(Skrifararklausan er á blaði 148v).

2.31 (149r-149v)
Þórnaldarþula
Rubric

Þornaddarþula

Incipit

Hlýði fólk fræði mínu á meðan ég set sök mína í sleða …

Explicit

… vinstra fæti, fótur úr feitleika. Fallið höfuð úr tönn.

Note

Eitt elsta þekkta hdr. þulunnar (sbr. Einar G. Pétursson, Gripla XVIII)

Text Class
2.32 (150r-153v)
Sólarljóð
Rubric

Sólarljóð Sæmundar prests hins fróða

Incipit

Óvinum þínum trú þú aldreigi …

Explicit

… hinum líkn en lifa.

Text Class

Physical Description

Support
Pappír.
No. of leaves
ii +153 + ii blöð (190-192 mm x 145-150 mm).
Foliation
Blöð handritsins voru ótölusett en merkt með blýanti af skrásetjara, 1-153. Leifar af fyrri blaðsíðumerkingu (bls. 1-25) má sjá á blöðum 78r-90r.
Collation

Tuttugu og þrjú kver. Blöð 1 og 2 (titilsíður) eru stök.

  • Kver I: blöð 3-9, 3 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver II: blöð 10-17, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 18-25, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 26-33, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 34-41, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 42-49, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 50-57, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 58-65, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 66-73, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 74-77, 2 tvinn.
  • Kver XI: blöð 78-81, 2 tvinn.
  • Kver XII: blöð 82-90, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver XIII: blöð 91-98, 4 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 99-106, 4 tvinn.
  • Kver XV: blöð 107-114, 4 tvinn.
  • Kver XVI: blöð 115-122, 4 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 123-128, 3 tvinn.
  • Kver XVIII: blöð 129-132, 2 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 133-135, 1 tvinn + 1 stakt blað..
  • Kver XX: blöð 136-139, 2 tvinn.
  • Kver XXI: blöð 140-144, 2 tvinn + 1 stakt blað..
  • Kver XXII: blöð 145-149, 2 tvinn + 1 stakt blað..
  • Kver XXIII: blöð 150-153, 2 tvinn.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 165 mm x 125 mm.
  • Línufjöldi er ca 20-30.
  • Leturflötur er afmarkaður
  • Griporð eru víða.

Condition

  • Blað eða blöð virðast hafa glatast á milli blaða 132v-133r.
  • Blöð eru skítug og notkunarnúin.
  • Texti hefur skerst lítillega, t.d. á blöðum 145 og 149 vegna afskurðar blaða.

Script

Að mestu með hendi Árna Böðvarssonar, fljótaskrift og kansellískrift.

Á blöðum 150r-153v er þó hugsanlega önnur hönd.

Decoration

Rauður rammi er um leturflöt og tvöfaldur um titilsíður.

Fyrirsagnir eru með blekfylltum stöfum og upphafsstafir eru einnig blekfylltir (sbr. 3r).

Bókahnútur eða ígildi bókahnúts, þ.e. skreyting við niðurlag texta (sjá t.d. blöð 52v og 106v).

Additions
Nöfn fyrri eigenda má sjá á blöðum 1r-3r, 77v og á blaði 153v. Eitthvert krot er á blöðum 1v og 148v og viðbætur eru víða (sjá t.d. 99r).
Binding

Band (205 mm x 165 mm x 43 mm) er nýlegt, klætt grænu leðri. Kjölur er þrykktur. Saurblöð eru ný, tvö hvoru megin, (annað tveggja úr japanspappír).

Accompanying Material

Seðill með upplýsingum um gefanda og feril.

History

Origin
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1743.
Provenance

Upplýsingar um fyrri eigendur má fá í handriti: Á blaði 2v stendur: Þessa bók heimila eg Mr. Jóni Grímssyni til eignar þann June 12, 1832. Til merkis mitt nafn Jón Sigurðsson. Fyrir neðan hefur J.Grímsson að því er virðist, kvittað fyrir móttöku. Á blað 77v er skrifað: Þessa bók á ég undirskrifaður með réttu og hún er mér heimiluð af hennar réttum eiganda mr. Jóni Sigurðssyni, Hörðubóli þann June 12, 1832. Testerar J. Grímsson. Og örlítið neðar á sama blaði: Þessa bók Snorra og Sæmdundar-Eddur á ég undirskrifaður J. Grímsson. Á blað 152v er skrifað: Sölvason frá Löngumýri gefur Daníel Kristjáni þessa bók 1898.

Að því er fram kemur á seðli hefur handritið verið keypt af bóksala í Ísrael af gefanda handritsins Erni Arnar ræðismanni og fjölskyldu hans.

Acquisition
Stofnun Árna Magnússonar eignaðist handritið 2003 (sbr. seðil).

Additional

Record History
VH skráði handritið í August 2010

Bibliography

Metadata
×

Metadata