Detaljer om håndskriftet

SÁM 34

Lausavísur, kvæði o.fl. ; Island

Bemærkning
3 möppur afhentar Jóni Samsonarsyni af Árna Helgasyni í Stykkishólmi 1971 (sbr. ópr. lista SÁM).

Indhold

1 (1-45)
Lausavísur, kvæði o.fl.
Forfatter

Jón J. Ólafsson frá Fremri-Langey

Bemærkning

Efnið er skrifað í glósubók, á miða og laus blöð.

Pappakápa heldur utan um efnið.

Á henni framanverðri stendur: Handrit sem Árni Helgason stöðvarstjóri í Stykkishólmi afhenti mér 1971. Bók og blöð eru að sögn Árna með hendi Jóns Ólafssonar frá Langey. Vísur ortar af Jóni sjálfum. J.S.

1.1 (1-32)
Lausavísur og kvæði úr glósubók
Bemærkning

Meðal efnis eru vísur um draum Hákonar Einarsson, Flatey 1913: Hringagefnir hlýði á … (26 erindi (1r-3v); lýsing á kjörum höfundar: Fyrtur auði á ævileið … (15v); Formannavísur: Sels á grundu sókndjarfur … (17r) og fjöldi lausavísna. Blöð 4r-13v eru auð.

1.1.1 (33-45)
Lausavísur og kvæði o.fl. af miðum
Bemærkning

Meðal efnis eru lausavísur, sendibréf frá Jóhannesi Jónssyni, 5. april 1951, miðar með útreikningum og tvær kvittanir frá 1952; önnur fyrir árgjald hjá Slysavarnarfélagi Íslands.

Miðarnir fylgja glósubókinni.

Tekstklasse
1.2 (46-60)
Lausavísur o.fl.
Bemærkning

Meðal efnis eru lausavísur skrifaðar á bréfpoka (sjá blað 46), umslög og umslagsbúta (sjá t.d. blöð 47 og 56), kvittun fyrir áksrift 1949 á tímaritinu Ægi (sjá blað 59) og kvittun Sparisjóðs Stykkishólms fyrir greiðslu afborgunar af skuldabréfi frá 19. april 1941

Efnið er sér í hvítu umslagi sem merkt er: Stofnun Árna Magnússonar.

1.3 (46-60)
Lausavísur o.fl.
Bemærkning

Meðal efnis eru lausavísur skrifaðar á bréfsefnisblöð (sjá blað 61-63), umslög og umslagsbúta (sjá t.d. blöð 70 og 82) og umbúðarpappír (sjá blað 68). Þarna er til dæmis að finna bænir í bundnu máli: Er framundan aðeins neyð … (sjá blað 62) og bænir eru einnig á blaði 84 Náð þína drottinn núna í nauðum … (3. erindi), Heilagi himna drottinn … o.fl.; kvæði sem kveðið var þegar höfundur frétti lát Björns Guðfinnssonar: Íslenskunnar vera vígin …; vísa kveðin um gengisfallið: Strarfs nú fækka stundirnar, / stöðugt lækka tekjurnar …; formannavísur: Ötull viður aflafar … (sjá blað 88), sendibréf til góðs kunningja5. marts 1948 og Endir á draumi Hákonar Einarssonar skrifaður eftir minni: Helst það særir hyggju bú /hjálp er ei fær að gjalda …(sjá blað 93)

Efnið er sér í brúnu umslagi umslagi sem merkt er: Stofnun Árna Magnússonar.

Tekstklasse
2 (94-100)
Úr dánarbúi Þorvaldar Jóhannssonar skipstjóra og skósmíðameistara.
Bemærkning

Pappakápa heldur utan um efnið. Á henni framanverðri stendur: Frá Árna Helgasyni stöðvarstjóra í Stykkishólmi, afhent 1971. Úr dánarbúi Þorvaldar Jóhannssonar skipstjóra og skósmíðameistara. J.S.

2.1 (94r)
Sveinsbréf í skósmíði handa Þorvaldi Jóhannssyni í Stykkishólmi.
Incipit

Sigurður Jónsson sýslumaður Snæfellsness og Hnappadalssýslu kunngjörir: …

Bemærkning

Bréfið er dagssett í Stykkishólmi þann 11. marts 1885

Á bréfinu kemur fram að það hefur kostað handhafann tvær krónur.

Bréfið er tvíblöðungur; einungis er ritað á rekto-hlið fyrra blaðsins; blöð 94v-95v eru auð.

2.2 (96r-96v)
Kvæði um Þorvald Jóhannsson, skósmíðameistara í Stykkishólmi
Forfatter

Reinholt Richter

Rubrik

Herra skósmíðameistari m/m Þorvaldur Jóhannsson, Stykkishólmi

Incipit

Þú ert ennþá eins og forðum …

Kolofon

Með alúðarþökk fyrir dýrt kveðið ljóð frá gömlum Hólmara.

Bemærkning

(Skrifaraklausan er á blaði 96v).

2.3 (97r)
Afmæliskveðja til Þorvaldar Jóhannssonar skipherra í Stykkishólmi.
Forfatter

Reinholt Richter

Rubrik

Til Þorvaldar Jóhannssonar skipherra, á afmælisdegi hans 31. december 1918

Incipit

Landið á því láni að fagna …

Explicit

… og kjarkinn sem þú fékkst í arf.

Kolofon

Frá nokkrum vildarvinum.

Bemærkning

Með hendi Óskars Clausen.

(Skrifaraklausan er á blaði 97r).

Kvæðið er skrifað á tvíblöðung; einungis er ritað á rekto-hlið fyrra blaðsins; blöð 97v-98v eru auð.

2.4 (99r)
Afmæliskveðja til Þorvaldar Jóhannssonar skipherra í Stykkishólmi.
Forfatter

Gestur Guðmundsson, bókhaldari í Stykkishólmi?

Rubrik

Sextíu ára afmæliskveðja til hins góðkunna, fyrrum skipherra Þorvaldar Jóhannssonar, Stykkishólmi. Kveðið undir ljúfum lögum og dýrum háttum af gömlum háseta.

Incipit

Þorvaldur allar aldir …

Explicit

… gjaldi lýðir Þorvaldi.

Kolofon

Frá nokkrum vildarvinum.

Bemærkning

Neðanmáls stendur skrifað með blýanti: Talið eftir Gest Guðmundsson, bókhaldara í Stykkishólmi.

2.5 (99r)
Ráðningarsamningur
Incipit

Ég Sesselja Einarsdóttir, Stykkishólmi ræð hér með dóttur mína Elínborgu Kristmundsdóttur, …

Bemærkning

Bréfið er dagsett 3. maj 1920 Elínborg er ráðin til Lúthers Jónssonar í Klettholti og vitundarvottar eru Pétur O. Lárusson og Bjarni Magnússon.

3 (94-100)
Kveðskapur og miðablöð um Bjarneyjarmið
Bemærkning

Pappakápa heldur utan um efnið. Á henni framanverðri stendur: Frá Árna Helgasyni stöðvarstjóra í Stykkishólmi, afhent 1971 J.S.

3.1 (101r-106r)
Vísur um bændur í Staðarsveit 1921
Rubrik

Vísur um bændur í Staðarsveit 1921

Bemærkning

Blað 106v er autt.

Tekstklasse
3.1.1 (101r-105r)
Út á bláa boðnar lá …
Incipit

Út á bláa boðnar lá …

Explicit

… austan úr Huldufjöllum.

Bemærkning

Fjörutíu erindi.

Tekstklasse
3.1.2 (105r-106r)
Senn kveð ég þig sveitin fríða …
Rubrik

Til Staðsveitinga

Incipit

Senn kveð ég þig sveitin fríða …

Explicit

… auðnu sólin heit.

Bemærkning

Fimm erindi.

Tekstklasse
3.2 (107-113)
Miðablöð yfir Bjarneyjarmið
Rubrik

Miðablöð yfir Bjarneyjarmið

Bemærkning

Blað 107 er miði með athugasemdum Árna Helgasonar í Stykkishólmi og Jóns Samsonarsonar. Þar segir að Aðalsteinn Páll Brynjólfsson í Rúfeyjum (Dalamenn II: 287) hafi skrifað blöðin eftir frásögn Eyjólfs Jónssonar, Rófubúð í Bjarneyjum.

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale

Pappír

Antal blade
113 blöð; af öllum stærðum og gerðum.
Layout

Skrifttype

Nokkrir skrifarar, m.a. Jón Ólafsson frá Langey og Aðalsteinn Páll Brynjólfsson frá Rúfeyjum. Skriftin er snarhönd.

Indbinding

Óbundið. Þrjár pappakápur eru um blöðin og eru þær í pappírsumslagi með hörðum spjöldum og reimum.

Historie og herkomst

Herkomst

Efnið er skrifað á Íslandi, líklega að mestu leyti á seinustu áratugum nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu.

Proveniens

Þrjár möppur afhentar Jóni Samsonarsyni af Árna Helgasyni í Stykkishólmi 1971.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

VH frumskráði handritið 11.-15. september 2008, lagfærði og bætti við í september 2010

Jón Samsonarson skráði ca 1970. (Sjá vélritaða handritaskrá yfir SÁM-handrit sem varðveitt er á handritasviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum).

[Metadata]