Skráningarfærsla handrits

SÁM 26

Ættbálkur hjónanna Samsonar Samsonarsonar snikkara og Óskar Gunnarsdóttur

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-56v)
Ættbálkur hjónanna Samsonar Samsonarsonar snikkara og Óskar Gunnarsdóttur
Titill í handriti

Ættbálkur hjónanna Samsonar Samsonarsonar snikkara og Óskar Gunnarsdóttur …

Athugasemd

Ættartala.

Efnisorð
2 (56v-56v)
Kvæði
Upphaf

Þú sveina fjöld á fögru jökulvengi …

Niðurlag

… og meyjar bros á vörum leikur blítt.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 56 + i blöð í oktavó (172 mm x 109 mm). Bl. 1v að mestu autt.
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 3-112 (2r-56v).

Kveraskipan

Sjö kver:

  • Kver I: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver II: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver III: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver IV: 10 blöð, 5 tvinn.
  • Kver V: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver VI: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver VII: 6 blöð, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 146 mm x 85 mm.
  • Línufjöldi er 16-19.
  • Handritið er línustrikað, en einnig er strikað fyrir leturfleti.

Ástand

Aftarlega eru kver aðeins farin að losna úr bandi.

Skrifarar og skrift

Sighvatur Grímsson Borgfirðingur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Stimpill eiganda: Fremra saurbl. 1r.
  • Upplýsingar um feril og skrifara með hendi Einars Ólafs Sveinssonar: Fremra saurbl. 1r.
  • Leiðréttingar inni í texta og út á spássíum með annarri hendi.

Band

Band frá 1843-1900, e.t.v. samtímaband (180 mm x 116 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd marmarapappír. Rex á kili og hornum. Pappakápum hefur verið slegið um handritið.

Fylgigögn

Laus seðill með viðbótum, milli bl. 62 og 63, e.t.v. með sömu hendi og aðrar leiðréttingar í handritinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Sighvati Grímssyni Borgfirðingi 17. nóvember 1873 (sbr. fremra saurbl. 1r og bl. 1r).

Ferill

Handritið er sennilega skrifað fyrir Ósk Gunnarsdóttur og Samson Samsonarson. Sonur þeirra hjóna, Haraldur, gaf Stofnun Árna Magnússonar handritið (sbr. fremra saurbl. 1r).

Aðföng

Handritastofnun Íslands fékk handritið að gjöf frá Haraldi Samsonarsyni, 23. júlí 1970.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS lagfærði skv. reglum TEIP5.

GI skráði 29. september 2003, sjá einnig óprentaða bráðabirgðaskrá Árnastofnunar.

Lýsigögn
×

Lýsigögn