„Sagan af kóngsdætrunum og veiðimönnunum (ævintýri)“
„Einu sinni í fyrndinni …“
„… Og lifði allt vel og lengi, Og lýkur hér sögunni. Endir.“
Blað 18 er autt.
„Sundmaðurinn“
„Einu sinni í fyrndinni bjuggu karl og kerling í koti sínu …“
„… mikið viljugri að vinna eftir en áður. Enda þurfti hann þess nú ekki. Endir. Endir.“
Blað 26 er autt.
„Sagan af Steini bónda á Þrúðvangi“
„Steini var eitt sinn á ferð …“
„… Steinn bóndi bjó þarna til elli og farnaðist alltaf vel. Og svo ljúkum vér sögu þessari.“
„Saga þessi á að hafa fundist í skræðum eftir Helga í Húsavík. Hvort hún er eftir hann sjálfan eða er æfagömul munnmæli veit eg ekki. Einhver eining af sögu þessari kom út í Þjóðsögum Jóns bókavarðar Árnasonar í Reykjavík, en ekkert er hún lík þessari sögu. Sögu þessa sagði mér móðir mín Helga húsfreyja Sæmundsdóttir í Leirhöfn. Helgi Kristjánsson frá Leirhöfn.“
Skrifaraklausan er á blaði 39v. Blað 40 er autt.
„Sagan af enum tólf stúdentum; sögn Páls Illugasonar. Handrit Helga Kristjánssonar frá Leihöfn.“
„Einu sinni voru tólf skólasveinar sama vetur …“
„… er draugarnir gáfu honum. Og endar svo saga þessi.“
Blöð 57v-58v eru auð. Sagan er einnig í SÁM 25 e; ekki er um orðrétt sömu uppskrift að ræða og niðurlag er með öðru móti.
Blöð eru númeruð af skrásetjara (með blýanti): 1-58.
Tuttugu og þrjú kver.
Með hendi Helga Kristjánssonar í Leirhöfn (sbr. blað 54r); snarhönd.
Á umslaginu sem er utan um handritið er síðari tíma viðbót: Gamlar sögur. Einnig kemur þar fram upplistun: 1. Bokki sat í brunni, 2. Drengurinn Dali, 3. Strákurinn sem … 4. Hart bítur sá hvíti, 5. Sjaldan breytir … en ekkert af þessu efni (1-5) er í handritinu.
Handritið er óinnbundið; er í brúnleitu umslagi.
Það liggur í grárri pappaöskju með handritum a, c-f.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega í upphafi tuttugustu aldar.
Það er í umslagi með brúnum miða, sem á er prentað: Héraðsbókasafn Norður-Þingeyjarsýslu, Leirhöfn, Norður-Þingeyjarsýslu, Iceland. Póststimpillinn gefur til kynna að það sé sent frá Havant Hants, Great Britain, 17. nov. 1969.
Bókin er ein sex lítilla bóka sem Stofnun Árna Magnússonar á í uppskrift Helga Kristjánssonar (sbr. ópr. skrá SÁM).
VH skráði November 03, 2010.