Manuscript Detail

SÁM 25a

Sögubók (1/6) ; Iceland, 1907

Language of Text
Icelandic

Contents

1 (1r-6r (bls. 3-11))
Sagan af Loðinbarða
Incipit

Það var(!) einu sinni hjón á bæ. Þau áttu sér þrjár dætur …

Explicit

… og Helga fékk góða giftingu. Endir.

Colophon

Skrifað hefur Helgi Kristjánsson, Leirhöfn.

Note

Skrifaraklausan er á blaði 6r; á blaði 6v eru pennaprufur þar sem í hverja línu er skrifað: Herra Árni Árnason, oddv.

Text Class
2 (7r-13v)
Sagan af Jóni og kafteininum
Incipit

Jón hét maður, ei er getið um föðurnafn hans né ætterni …

Explicit

… Jón þáði það og barnið fékk gott uppeldi. (Endir).

Colophon

Uppskrifað hefir Helgi Kristjánsson, Leirhöfn. (frá Leirhöfn) HH? (Sléttu), (Anno 1907), (Evrópu), (Ísland)

Note

Skrifaraklausan er á blaði 13v

Text Class

Physical Description

Support
Pappír.
No. of leaves
13 blöð (184 mm x 125 mm).
Foliation
Upphafleg blaðsíðumerking 3-12. Bls. 8-12 eru ranglega tölusettar - ættu að vera bls. 10-14 þar sem tvær síður á milli bls. 8 og 9 eru ótölusettar. Bls. 15-28 eru ónúmeraðar.

Blöð númeruð af skrásetjara með blýanti: 1-13.

Collation

Eitt kver.

  • Kver I: blöð1-13, 6 tvinn og eitt stakt blað.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 160 mm x 115 mm.
  • Línufjöldi (áprentaður) er 22.

Condition

  • Handritið er tekið að losna úr pappakápunni og blöð eru blettótt og skítug. Vantar eitt blað framan af handritinu.

Script

Með hendi Helga Kristjánssonar í Leirhöfn (sbr. blöð 6r, 13v og víðar); snarhönd.

Additions

  • Sjá má nafn Helga Kristjánssonar víða um bókina; hún er líka merkt honum framan á kápu á tveimur stöðum: Helgi Kristjánsson, Helgi Kristjánsson, Leirhöfn á þessa bók með öllum rétti.
  • Nafnið Guðmundur Kristjánsson kemur tvisvar fyrir, þ.e. á blöðum 1r-v.
  • Pennaprufur á blaði 6v.
  • Á aftara kápuspjaldi eru nöfnin Finnbogi Friðriksson , Finnur Árni Jónsson og Sigurður Kristjánsson .

Binding

Glósubók í þunnri pappakápu sem merkt er sem slík með áletrun á kápu: The Crown Educational Exercise Book. Áprentað laufskreyti er í hornum og kóróna sveipuð lárviðargreinum er fyrir miðju á efri hluta kápunnar.

Aftan á kápunni er margföldunartafla; taflan er yfir tölur á bilinu 2-12 sem margfeldi af 1-20.

Bókin liggur í grárri pappaöskju með handritum SÁM 25 b-f.

History

Origin

Bókin var skrifuð á Íslandi, 1907Leirhöfn, Sléttu (sbr. blað 13v).

Bókin var skrifuð á Íslandi, 1907Leirhöfn, Sléttu (sbr. blað 13v).

Provenance

Hún er ein sex lítilla bóka sem Stofnun Árna Magnússonar á í uppskrift Helga Kristjánssonar (sbr. ópr. skrá SÁM).

Acquisition

Bókin er ein sex lítilla bóka sem Stofnun Árna Magnússonar á í uppskrift Helga Kristjánssonar (sbr. ópr. skrá SÁM).

Additional

Record History

VH skráði November 03, 2010.

Metadata
×
  • Country
  • Iceland
  • Place
  • Reykjavík
  • Institution
  • The Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies
  • Repository
  • Handritasvið
  • Collection
  • Safn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Shelfmark
  • SÁM 25a
  • Keywords
  • Tales/exempla
  • XML
  • View as XML  
  • Notes
  • Send Feedback on Manuscript  

Metadata