Þýðandi : Ásgeir Magnússon
Þýðandi skrifaði handritið og skreytti. Hann hefur ætlað það til útgáfu hjá Menningarsjóði 1963 (sbr. titilsíðu). Titilsíður eru fyrir hverjum kafla og formálar þýðanda. Séra Guðmundur Sveinsson bar þýðinguna saman við hebreska textann. Athugasemdir þýðanda eru á bls. 313-317. Smásaga bls. 325-326 og Ritfregn bls. 327-328.
Pappír.
Handritið er blaðsíðumerkt af skrifara 1-329.
Eindálka.
Strikað fyrir leturfleti og línum.
Með hendi Ásgeirs Magnússonar.
Teikningar í lit eru víða í bókinni.
Upphafsstafir kafla og erinda flúraðir og í lit.
Orð og setningar víða rauðritað til áherslu.
Bundið ca 1963-1969 (304 mm x 208 mm x 50 mm).
Handritið var skrifað á Íslandi 1963 af þýðanda.
Ásgeir Magnússon gaf Handritastofnun Íslands 1969 (sbr. fylgigögn með SÁM 18).
ÞS skráði handritið 6.-8. október 2008