Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 368 8vo

Reisubók séra Ólafs Egilssonar, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-34v)
Reisubók séra Ólafs Egilssonar
Titill í handriti

Sorgarreisa séra Ólafs sáluga Egilssonar. Cap. 1

Upphaf

Þá vér nú fyrst í Vestmannaeyjum spurðum til ræningja ...

Niðurlag

... eilífa sáluhjálp. Þess veiti oss Guð í Jesú nafni. | Amen.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 32 + i (163 mm x 101 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking 1-31 með blýanti á efri spássíu rektósíðu.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 135-143 mm x 86-93 mm.
  • Línufjöldi er 21-23.
  • Griporð.

Ástand

  • Blettótt víða sem skerðir ekki texta, sbr. 1v og 4v en frá bl. 9r-26v eru efri horn blaða illa farin og skerðir texta.

Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Skreytingar

Víða er skreyting við griporð, sbr. bl. 1v, 11v, 12v, 26r og 29r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Upprunalegt band (168 mm x 109 mm x 10 mm).

Bókaspjöld úr pappa klædd brúnum áþrykktum pappír. Límmiði framan á: Sorgar Reisa | Síra Olafs Eygelssonar | Ms.

Handritið er í ljósgrárri öskju (álímt efni) (185 mm x 122 mm x 19 mm).

Límmiði á kili með safnmerki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupamannahöfn

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

MJG skráði handritið samkvæmt TEI P5 3. október 2023 og síðar.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 304.

Viðgerðarsaga
Gert var við handritið í mars til apríl 1972 og seinast í júlí til ágúst 1995. Ekkert var hreyft við upphaflegu bandi, en handritið er í nýju hylki. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn