Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 339 8vo

Nokkrar óreglulegar reglur, 1750-1799

Titilsíða

Stutt ágrip | úr rétt rita bók Íslendinga. | Enn Titulus er þar þessi: | Nokkrar óreglulegar reglur | (Regulæ qvædam fumultuariæ). | Í spurningum fram settar | eftir A B C um það, | hvorn veg rétt eigi að tala | bókstafa og skrifa | þá nú | lifandi íslensku tungu. | Fyrsta ávarp, | sem | í flýti var samantekið | árið 1762. (Bl. 1r).

Neðst á titilsíðu er athugasemd um skyldleika textans og þess upprunalega.

Tungumál textans
íslenska (aðal); danska

Innihald

1 (1r-63v)
Nokkrar óreglulegar reglur
Titill í handriti

[Merk inn þetta compendium] Minn kæri samlandi vin og bróðir!

Upphaf

Fyrst að þú hefur ...

Niðurlag

... oss samlöndum öllum til vegs og velferðar og ævilegra nota!

Tungumál textans
íslenska
2 (64r-65r)
De Ratione Inter pungendi
Titill í handriti

De Ratione Inter pungendi Det er Om Forskiæls Tegn udi Skrive Rigtig ljeden.

Upphaf

I Comma. Hvis Form er et bagvent c Saaledes ...

Niðurlag

... Tantum.

Tungumál textans
danska

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 65 + ii blöð (160 mm x 102 mm). Auð blöð 36v, 65v.
Tölusetning blaða

Engar blaðamerkingar, nema blöð 30, 36, 37, 40, 50, 60 með blýanti, síðari tíma viðbót.

    Umbrot

    • Eindálka.
    • Leturflötur er 128-137 mm x 71-84 mm.
    • Línufjöldi er 22-25.
    • Leturflötur afmarkaður með þurroddi (sjá t.d. 32v).
    • Texti endar í totu (sjá bl. 5v, 63v).
    • Griporð.

    Ástand

    • Blöð gulnuð og bylgjuð.
    • Texti sést í gegn (t.d. bl. 6v).

    Skrifarar og skrift

    Óþekktur skrifari, fljótaskrift en kansellísbrotaskrift í fyrirsögnum, fyrstu línu málsgreinar og orðum sem hann leggur áherslu á (sbr. bl. 51v-52r).

    Skreytingar

    Titilsíða bl. 1r.

    Fyrirsagnir með stærra letri en textinn (sjá t.d. bl. 2r). Fyrsta lína textans er einnig oft með stærri og settari skrift en meginmálið (sbr. bl. 3r).

    Flúraðir upphafsstafir (sjá t.d. bl. 6r).

    Ígildi bókahnúts, (bl. 5v, 63v).

    Ýmsar upplistanir eru á blöðum 4r-5r, 22v-23r, 41r, 44v-46v, 61v.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur

    Band

    Upprunalegt band (165 mm x 108 mm x 23 mm).

    Bókfell, utanáliggjandi saumur á kili (long-stitch binding, þ.e. sýnilegur saumur á ytra byrði bands).

    Handritið er í ljósgrárri öskju (álímt efni) (184 mm x 124 mm x 23 mm). Límmiði á kili með safnmarki.

    Bókasafnsnótur á kápu eru ill læsanlegar.

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Handritið er tímasett á síðari hluta 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 948.

    Ferill

    Sveinbjörn Bjarnason, eigandi.

    Jón Ólafsson eldri, eigandi.

    Erich Christian Werlauff, eigandi.

    Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, eigandi.

    Árið 1810 gaf Jón Ólafsson Werlauff handritið sem síðar lét Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn fá það árið 1850.

    Aðföng

    Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

    Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.

    Aðrar upplýsingar

    Skráningarferill

    MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 1. desember 2023 ; bætti við skráningu 26. janúar 2024.

    Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 301-302.

    Viðgerðarsaga
    Gert var við handritið í mars til apríl 1972 og júlí til ágúst 1994. Ekkert var hreyft við upprunalegu bandi, en handritið er í nýju hylki.
    Myndir af handritinu

    • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

    Notaskrá

    Lýsigögn
    ×

    Lýsigögn