Ein ný sálmabók með lystilegum fögrum lofsöngvum Guði allsmektugum til lofs og dýrðar en þeim til gagns sem iðka. Skrifuð á Hólum í H(jalta)d(al). Anno 1676.
„Einn ágætur sálmur út af upprisunni herrans Jesú Kristí. Tón: Gæskuríkasti gr.“
„Hjartað fagnar og hugur minn, / herrann Jesús er upprisinn …“
„Gæskuríkasti græðari minn“
22 erindi. Við fyrirsögnina hefur verið skrifað með yngri hendi: S. H. P. s.. Hluti fyrirsagnar með rauðu bleki. Upphafsstafur fyrsta erindis stór og skreyttur með gylltu bleki. Upphafsstafir erindanna annars eru skrifaðir með rauðu bleki en skreyttir með gylltu. Ýmsir stafir meginmáls skreyttir með rauðu bleki.
„Ágætur sálmur. Með sínum tón.“
„Vaknið upp, vaknið / oss vekur ein raust …“
„Með sínum tón“
3 erindi. Fyrirsögn og lagboði með rauðu bleki. Upphafsstafur fyrsta erindis stór, rauður og skreyttur með gylltu bleki. Upphafsstafir erindanna annars eru skrifaðir með rauðu bleki en skreyttir með gylltu. Ýmsir stafir meginmáls skreyttir með rauðu bleki.
„Söngvísa ort af Magnúsi Jónssyni við þýskan tón.“
„Ó, drottinn, Guð mín einka unaðssemd, / athvarf, traust, hæli, huggun, von og yndi …“
„Við þýskan tón“
10 erindi. Fyrirsögn með rauðu bleki. Upphafsstafur fyrsta erindis stór, rauður og skreyttur með með gylltu bleki. Upphafsstafir erinda annars ýmist brúnir eða rauðir. Skreyttir með gylltu bleki. Ýmsir stafir meginmáls skreyttir með rauðu bleki.
„Einn góður sálmur að hugsa um sína burtför. Tón: Ó, Jesú minn, ég finn álíður “
„Sál, mín sál, vakna þú / því vegferðarskeið líður nú …“
„Ó, Jesú minn, ég finn“
8 erindi. Fyrirsögnin, lagboðinn og fyrsti upphafsstafur skrifuð með rauðu bleki en skreytt með gylltu. Upphafsstafir annars með rauðu bleki. Stafir meginmáls hér og hvar skreyttir með rauðu bleki.
„Dagleg umhugsun þess síðasta dags. Og andleg hugvekja Guði“
„Upp líttu, sál mín, og umsjá þig vel / því aðkominn ég tel …“
24 erindi. Fyrirsögn, og fyrsti upphafsstafur skrifuð með rauðu en skreytt með gylltu bleki. Upphafsstafir skrifaðir með rauðu bleki. Stafir meginmáls hér og hvar skreytti rmeð rauðu bleki. Nótur fylgja.
„Reisusálmur til sjóar. Með lag: Himinn, loft, hafið, jörð“
„Í nafni ferjan fyrst / fer þínu Jesú Krist …“
„Himinn, loft, hafið, jörð“
9 erindi. Fyrirsögn, lagboði og upphafstafir skrifuð með rauðu bleki. Stafir hér og hvar skreyttir með rauðu bleki.
„Merkilegur sálmur. Tón: Faðir vor sem á him“
„Herra minn Guð, ég hrópa á þig, / í hörmung minni bænheyr mig …“
„Faðir vor á himnum ert“
13 erindi. Fyrirsögn, lagboði og upphafsstafir skrifuð með rauðu bleki. Fyrirsögn og fyrsti upphafsstafur skreytt með gylltu bleki. Stafir víða skreyttir með rauðu bleki.
„Bænarvers. Tón: Blíði Guð“
„Jesú minn, Jesú, mig að þér vef, / ég Jesú finn jafnan það syndgað hef …“
„Blíði Guð, börnum þínum ei gleym“
2 erindi. Fyrirsögn og lagboði skrifuð með rauðu bleki. Fyrsti upphafsstafur og einstaka aðrir stafir skreyttir með rauðu bleki.
„Einn morgunsálmur ortur af s. Jóni Þórðarsyni“
„Í Jesú nafni, ó Guð minn, / allra kærasti faðirinn …“
28 erindi. Úr upphafsstöfunum og fyrstu orðum í erindunum má lesa: Jón Þorsteinsson, Guðs orðs þénari, Kirkjubæ í Vestmannaeyjum söng þetta lof.
„Annar morgunsálmur. Sr. Ól. J. S.“
„Guð gefi öllum góðan dag, / gangi öllum allt í hag …“
12 erindi. Við fyrirsögnina hefur verið bætt við með yngri hendi: Sr. Ól. J. S.
„Þriðji morgunsálmur.“
„Guðs föðurs náð og miskunn mest / míns Jesú blóð og elskan best …“
3 erindi
„Vegferðarsálmur“
„Fer ég nú, Guð, í fylgd með þér, / ferð mína svo uppbyrja …“
8 erindi
„Ein auðmjúk játning eður klögun fyrir Kristó um náttúrlega spilling og holdsins veikleika“
„Gæskuríkasti græðari minn, / gef mér í hjartað andann þinn …“
14 erindi. Við fyrirsögnina hefur verið skrifað á spássíu með yngri hendi: Bjarni Jónsson skáldi.
„Ágætur sálmu(r). Tón: Óvinnanleg borg er vor Guð Sr. Ól. E. S.“
„Jesú fyrir embætti þitt / ástríka nafn og mildi …“
„Óvinnanleg borg er vor Guð“
17 erindi. Við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: Sr. Ól. E. S.
„Sálmur í þungum veikleika. Sr. Ól. E. s.“
„Hvört skal ég sækja harmabót / í hæstri neyð …“
36 erindi. Við fyrirsögnina er Sr. Ól. E. s. með annarri hendi.
„Sálmur s(éra) Stefáns Ólafssonar. Tón: Sæll ertu sem þinn Guð“
„Sætt lof ég segi þér, / sætasti faðir …“
„Sæll ertu sem þinn Guð“
9 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið: Stefán Ó.s. Á spássíu hefur verið bætt við með annarri hendi: Þessi sálmur er kveðinn af sr. Ól. E. s. meður nafn sonar síns.
„Sálmur um heimsins hrörnun. Tón: Heill helgra manna etc.“
„Ófrið öld bruggar / enginn lýð þinn huggar …“
„Heill helgra manna“
12 erindi. Á spássíu hefur verið bætt við með annarri hendi: Bjarni skáldi á Húsafelli.
„Sálmur Margrétar Ólafsdóttur. Tón: Allt mitt ráð til Guðs ég set etc.“
„Miskunnsamasti maður og Guð / mjúkasta hjálp í allri nauð …“
„Allt mitt ráð til Guðs ég set“
10 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið: Margrét Ó.d. Á spássíunni stendur skrifað með annarri hendi: Sr. Ó. E.
„Sálmur um eymdir mannkynsins og huggun þar í móti. Tón: Oss skal það öllum ljóst“
„Þér fæ ég þakkargjörð, / þénari bljúgur á jörð …“
„Oss skal það öllum ljóst“
17 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið Þórður Þorvarðsson.
„Söngvísa um afgang eins ástvinar“
„Hörð virðist hryggðar pína / hjartkærum skiljast frá …“
14 erindi. Á spássíuna hefur verið bætt við með annarri hendi: S. Ól. E. s.
„Sálmur Davíðs móti Zypheós. Tón: Sæll ertu sem þinn Guð etc.“
„Himneski geym mig, Guð, / við grimmum mönnum …“
„Sæll ert sem þinn Guð“
13 erindi. Búið er að breyta fyrsta vísorðinu úr Himneski faðir reynd þú mig Guð. Á spássíuna er búið að bæta við með annarri hendi: S. Ól. E. S. Í blaðnúmeraröðina hefur verið hlaupið yfir 54-55.
„Nýárssálmur. Tón: Heiðrum vér Guð af hug og sál etc.“
„Himnneski faðir, þóknist þér / þinn heilagan anda sendir mér …“
„Heiðrum vér Guð af hug og sál“
28 erindi. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: S. Ól. E. s. 10. maj 1896 J. Þ.
„Þakklætissálmur fyrir frelsan undan bólunni. Tón: Ó, Guð, vor faðir, sem í himiríki etc.“
„Lof hæsta dýrð og heiður sé þér, / herra Guð, af mínu hjarta og munni téð …“
„Ó,Guð, vor faðir, sem í himnaríki ert“
9 erindi
„Sálmur til Guðs í þungum freistingum. Tón: Einn tíma var sá auðugi mann“
„Himneski faðir, heyr þú mig, / hrópa ég nú í trú á þig …“
„Einn tíma var sá auðugi mann“
30 erindi. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við: Sr. Ól. E.
„Einn bænarsálmur ortur Sigríði Einarsdóttur í hennar veikleika. Tón: Ó, Guð, vor faðir, sem í himiríki ert etc“
„Sætasti faðir, sjá þú mína sorg og neyð / fyrir sonar þíns dapran deyð …“
„Ó, Guð, vor faðir, sem í himnaríki ert“
10 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið Sigríður E.d. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: Sr. Ó. E. Hlaupið er yfir 77 í blaðnúmeraröðinni.
„Þakklætissálmur Jóns Björnssonar á Skriðuklaustri eftir það hann var græddur“
„Jesú, æðsti Guð, / hjálpari trúr í nauð …“
12 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið: Jón Björnsson. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: Sr. Ó. E.
„Sálmur undir nafni Eiríks Ólafssonar“
„Engla kóngur klár, / kristninnar hirðir hár …“
„Sálmur undir nafni Þorgerðar Ólafsdóttur. Tón: Aví, aví, mig aum. mann. etc“
„Lof sé þér lof sé þér“
„Aví, aví, mig auman mann“
11 erindi. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: S. Ól. E. s. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa Lorgerður O.d. Eitthvað virðist því brenglað í upphafinu.
„Sálmur undir nafni Kristínar Ólafsdóttur. Tón: Bú þig sál mín biðlar til etc“
„Kóngurinn, kærasti minn, / kom þú nú í mitt hjarta …“
„Bú þig, sál mín“
„Endir þessara sálma“
10 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið Kristín O.d. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: S Ól. E. s.
„Nú eftirfylgja vísur sem ortar hafa verið um þann háttaktaða, guðhrædda og dyggðum prýdda höfðingsmann sál. Ara Magnússon“
„Ég má ekki annað / en Ara nefna Magnússon …“
7 erindi.
„Dyggðaspegill þeirrar æru- og ættgöfugu heiðursjóm(frúar) Helgu sál. Aradóttur. Sr. Ólafur Jónsson“
„Hér skal hróður rísa / um Helgu dóttur Ara …“
„Deyði 9. marts 1632 á sínu 28. aldursári.“
16 erindi.
„Sönn mynd og undirréttun um persónu og afgang þeirrar guðhræddu og skírlífu dugandiskvinnu Guðríðar Gísladóttur héðan sofnandi annó 22. december 1620 í Hítardal, inn í það himneska föðurland með sannri lifandi trú og guðlegu hjartans ákalli burtlíðandi. Samsett af hennar s. ektamanni eftirlátnum og syrgjandi húsbónda sr. Jóni Guðmundssyni.“
„Ó, þú feigðar fox, / fölvan ég meina þig dauði …“
„Endir versanna.“
59 erindi
„Huggunarkvæði fyrir Margrétu Sigmundardóttur“
„Mildi Guð, fyrir miskunn þína / m[ýkir] þeim sem þjáður er“
8 erindi. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa nafnið Margrét.
„Kvæði Arndísar Sigurðardóttur eftir son sinn, er hún missti í bólunni.“
„Sæti faðir himna halla, / hjartagóður þjáðum lýð …“
20 erindi. Úr upphafsstöfunum má lesa: Sugurður Jónsson sefur.
„Vísur um líf og afgang kvinnu míns ástkæra bróðurs s. Jóns Einarssonar.“
„Af heitum hjartans grunni / þakka ég, herra, þér …“
38 erindi. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: S Ól. E.s.
„Brúðkaupsvísur til minningar s. Páli Erasmussyni og hans kvinnu Halldóru Árnadóttur“
„Sæti faðir send mér þinn / sannleiksandann fróða …“
99 erindi
„Bænarkvæði ektakvinnu í veikleika hennar ektamanns“
„Ljúfi faðir, lof sé þér“
„Íslands árgalinn, það er, kvæði í móti bólunni og öðrum landplágum með áminningum og kristilegri bæn.“
„Allsvaldandi engla og manna, / eðlakóngurinn faðir og Guð …“
59 erindi. Á spássíu við fyrirsögnina hefur verið bætt við með annarri hendi: S Ól. E.s. pr. 1757. Litla vísnab. 10. maj 1886 J. Þ. Þar sem blöðin hafa verið rangt bundin inn ruglast erindaröðin. Erindi úr næsta kvæði á undan eru innan erindi úr þessu kvæði, á bl. 137.
„Einn kvöldsálmur með sínum tón“
„Gef þú oss, Jesú, góða nótt / gef þú oss verði vært og rótt …“
„Með sínum tón“
7 erindi
„Sálmur ortur af M. J. S. 1660“
„Dagur er kominn að kvöldi, / kært lof sé, drottinn, þér …“
8 erindi
„Annar kvöldsálmur af sama ortur 1660“
„Líknsamasti lífgjafarinn trúr, / lifandi Jesú góði …“
9 erindi. Í fyrirsögninni virðist ártalið fyrst hafa verið 1690 en breytt í 1660.
„Þriðji kvöldsálmur, ortur af sama og hinir. Tón: Á þér herra hef ég nú“
„Ó, herra Guð, minn hjálparmúr / heillasamasti faðir trúr …“
„Á þér herra hef ég nú von“
8 erindi
„Fjórði kvöldsálmur. Með sínum tón“
„Guð, faðir, sonur og andi hreinn, / þú heilög þrenning blíð …“
„Með sínum tón“
8 erindi
„Fimmti kvöldsálmur. Með sínum tón“
„Herrans himna veldi, / heilagi faðir minn …“
„Með sínum tón“
12 erindi
„Sjötti kvöldsálmur. Tón: Gæsku Guðs vér prísum“
„Sætt lof Guði syng fegin, / sál mín, með rósamt geð …“
„Gæsku Guðs vér prísum“
10 erindi
„Sjöundi kvöldsálmur. Með sínum tón.“
„Himneska hjálpar von / helgasti faðir …“
„Með sínum tón“
6 erindi
„Áttundi kvöldsálmur. Ortur af s. Guðbrand Jónssyni að Vatnsf(irði). Tón: Tunga mín af“
„Guðdóms þrenning gæsku blíða, / gættu allra bæna þín …“
„Tunga mín af hjarta hljóði“
17 erindi
„Níundi kvöldsálmur, ortur af S. Guðbrandi og má syngjast nær hallæri er fyrir höndum“
„Gæska þín, Guð, og miskunn mest / mun um ævi oss fylgja …“
12 erindi
„Tíundi kvöldsálmur. Tón: Sá frjáls við“
„Herra Guð faðir húm og dag / hefur að skiljast látið …“
„Sá frjáls við lögmál fæddur er“
15 erindi
„Ellefti kvöldsálmur, ortur af S Guðbr. Jónssyni 1666. Með sitt lag“
„Kominn er kaldur vetur, / kuldasamt frost og snjór …“
„Með sitt lag“
10 erindi
„Ein söngvísa. Tón: Sæll ertu sem“
„Herra Guð himnum á, / heill mín og lífið …“
„Sæll ertu sem þinn Guð“
19 erindi. Fyrirsögnin er rituð með rauðu bleki og skreytt með svörtu. Upphafsstafur fyrsta erindis er skreyttur með rauðu bleki og svörtu. Textinn annars skreyttur víða með rauðu bleki.
„Lofvers kristilegrar kirkju til síns brúðguma Jesú Kristí. Við tón: Gæskuríkasti gr.“
„Morgunstjarnan nú bjartleik ber, / birt með Guðs náð og sannleik er …“
„Gæskuríkasti græðari minn“
7 erindi. Fyrirsögnin skreytt með rauðu bleki. Lagboði skrifaður með rauðu bleki. Texti sálmsins víða skreyttur með rauðu bleki umhverfis stafi.
„Ein söngvísa. Tón: Af djúpri hryggð“
„Ó ég manneskjan eymdarfull, / angri hlaðin og pínu …“
„Af djúpri hryggð ákalla ég þig“
8 erindi. Fyrirsögn skreytt með rauðu bleki. Lagboði skrifaður með rauðu bleki. Texti víða skreyttur með rauðu bleki.
„Umþenking dauðans og burtfarar af þessum heimi. Tón: Um dauðann gef þú“
„Þegar mitt lífskeið líður hér, / lifandi drottinn góði …“
„Um dauðann gef þú, drottinn, mér“
8 erindi. Fyrirsögnin og texti kvæðsins skreytt með rauðu bleki. Lagboði skrifaður með rauðu bleki.
„Ágætur sálmur. Við sinn tón“
„Vaknið upp því kærir kalla / kóngsins vökumenn oss alla …“
„Við sinn tón“
3 erindi. Fyrirsögnin og lagboðinn skrifuð með rauðu og skreytt með svörtu bleki. Textinn skreyttur með rauðu bleki.
„Ágæt kvöldvísa þá maður gengur til hvílu“
„Í nafni Jesú náðin hreina / nú leggst ég í hvílu mína …“
3 erindi. Hluti fyrirsagnar og texti skreytt með rauðu bleki. Hluti fyrirsagnar skrifaður með rauðu bleki.
„Kvöldsálmur. Tón: Halt oss, Guð, við þitt“
„Almáttugur Guð, ákall mitt / upp lát koma í ríkið þitt …“
„Halt oss, Guð, við þitt hreina orð“
13 erindi. Fyrirsögnin og textinn skreytt með rauðu bleki. Lagboðinn skrifaður með rauðu bleki.
„Nær maður gengur í sitt bænahús einsamall þá má hann falla á kné, lesa svo eina af þessum bænum sem hér eftirfylgja“
„Ó, herra Jesú Kriste, / ég stend fyrir þér …“
12 bænir/erindi. Fyrirsögn skrifuð með rauðu bleki og skreytt með svörtu. Textinn skreyttur með rauðu bleki.
„Sú drottinlega bæn sem þeir gömlu kölluðu gyllenifaðirvor“
„Faðir vor þú sem ert á himnum / almáttugur í þínum verkum …“
8 erindi/hlutar, hver þeirra hefst á línu úr faðirvorinu. Texti úr faðirvorinu rauðritaður en textinn annars skreyttur með rauðu bleki.
„Einn brúðkaupssálmur. Tón: Hjartað kátt höfum þá gengur stirt“
„Brúðhjón ung blessuð og heiðurleg, / sálmasöng ávarpa yður ég …“
„Hjartað kátt höfum þá gengur stirt“
7 erindi. Fyrirsögnin skrifuð með rauðu bleki. Lagboði og texti skreytt með rauðu bleki.
„Æruminning þeirra ágætu systkina Daða Eggertssonar og Ragnheiðar Eggertsdóttur hvör Guð kallaði til sinna náða að Skarði á Skarðsströnd“
„Spurðum vér andlátsorðin / að garðinum Skarði …“
12 erindi. Fyrirsögn og texti skreytt með rauðu bleki. Hluti fyrirsagnar skrifaður með rauðu bleki og skreyttur með svörtu.
„Nokkrar vísur eftir Magnús sáluga Gissursson í ljóð snúin af sr. Jóni Arasyni að Vatnsfirði“
„Erfidrápu er mér skylt / eftir Magnús smíða og prýða …“
24 erindi. Upphaf fyrirsagnar með rauðu bleki, skreytt með svörtu. Meirihluti fyrirsagnar og texti skreytt með rauðu bleki.
„Æruminning þess heiðurlega guðhr. manns Teits Torfasonar. Í ljóð læst af sr. Jóni s. Arasyni prófasti í Þorskafjarðarþingi“
„Teitur í tignarsæti / Torfason er horfinn …“
6 erindi. Hluti fyrirsagnar og textinn allur skreyttur með rauðu bleki. Hluti fyrirsagnar skrifaður með rauðu bleki en skreyttur með svörtu.
„Nokkur bænarorð undir nafni Ragnheiðar Jónsdóttur.“
„Réttskínandi ríkdómsandi / ráðsins stjórn yfir skírnarbandi …“
Blað 186 er týnt og því vantar í textann. Úr upphafsstöfum erindanna má lesa stafina Ragnheið[00…00]ir. Hluti fyrirsagnar og textinn allur skreyttur með rauðu bleki. Hluti fyrirsagnar skrifaður með rauðu bleki en skreyttur með svörtu.
„Þessi vers hafa eftir orðið og eiga heima hjá þessu merki, [merki]“
„Til þín flý ég töfrum vafinn / til þín flý ég syndum kafinn …“
3 erindi. Fyrirsögnin er rituð með rauðu bleki. Texti kvæðisins er skreyttur með rauðu bleki. Innsetningarmerkið finnst ekki. Það hefur verið á burtskorna blaðinu 186. Bragarhátturinn hér er sá sami og á kvæði Ragnheiðar Jónsdóttur og síðasta vísuorð hvers erindis sambærileg við síðustu vísuorð í því. Því virðist þetta eiga að tilheyra því kvæði.
„Sálmur um þolinmæði undir krossinum. Tón: Ó, minn Kriste kær“
„Á minn ástkæra Guð / ég trúi í sorg og nauð …“
„Ó, minn Kriste kær“
5 erindi. Fyrirsögnin er skrifuð með rauðu bleki en skreytt með svörtu. Lagboðinn og texti kvæðisins er með svörtu bleki, skreytt með rauðu. Hlaupið hefur verið yfir nr. 188 í númeraröð blaða. Á eftir kvæðinu stendur: Allt hvað andardrátt hefur lofi drottinn halelúja, skrautlega skrifað með rauðu bleki
„Registur yfir þessa bók og merkir a þá fyrri blaðsíðu en b þá seinni.“
„Sálmur sr. Hallgríms Péturssonar Af upprisuhistoríunni fol. 1a“
Víða búið að bæta við nöfnum kvæðahöfunda á spássíu.
Á saurblaði stendur: Ragnheiður JónsdóttirRagnheiður Jónsdóttir á þessa sálmabók með réttu anno 1678.
Upprunalegt skinnband (154 mm x 102 mm x 37 mm). Bandið þrykkt og með upphleyptum kili og spennum. Í skinnið eru þrykktir upphafsstafir eigandans, R I D, og ártalið 1676. Handritið liggur í öskju.