Askja sem inniheldur mismunandi stóra seðla með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar, bundið í bók og möppur.
„Til Gísla Ísleifssonar Einarsens (þegar þeir Jónas Hallgrímsson voru báðir í skóla).“
„Eg á bágt / mér er ami allt um kring ...“
„... aftur manstu' hann Jónas þinn.“
4 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „(Skrifað upp eftir minni prófasti konu Guðrúnu Stephensen í Holti í Önundafirði). P.M.“ Með blýanti, önnur hönd: „Fra F. Jónssyni dat[?] 1934. Har tidligri tilhort Ól. Davíðssyni.“
„Alþing hið nýja“
„Hörðum höndum / vinnur hölda kind ...“
„... góða þegna.“
12 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J.H.“
„Meyjargrátur (eftir Schiller)“
„Dunar í trjálundi / dimm þjóta ský ...“
„... á harminum hjartað að þreyta.“
4 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J.H. Frumkvæðið heitir: „Der Mädchen Klage - Der Eichwald Brauset.““
„Dagrúnarharmur (eftir Schiller „Kindsmörderin“)“
„Heyri eg að kirkju / dimmgjalla ...“
„... neyttu karlmennsku.“
31 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „(J.H.)“ Á bl. 4r (3) stendur: „12 Nov Lehmann (Dygninger).“
„Alheimsvíðáttan“
„Er eg sá geisli / er guðs hönd skapaði ...“
„... flýttu hér úr stafni.“
11 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „(J.H.)“
„Kveðja Íslendinga í Kaupmannahöfn til séra Þorgeirs Guðmundssonar. 16. apríl 1839.“
„Nú er vetur úr bæ / rann í sefgrænann sæ ...“
„... þetta veri vort skilnaðarminni.“
9 erindi.
„Kveðja til síra Þorgeirs Guðmundssonar 29. apríl 1839.“
„Nú er vetur úr bæ / rann í sefgrænan sæ ...“
„... góðri hugljúfi bræðranna þinna.“
9 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „Jónas Hallgrímsson“ Sama ljóð og fyrir ofan, en erindin eru í annarri röð.
„Bar mig á brenndum auri / breiðar eldsjóðu leiðir ...“
„... leiddu hraunið seydda.“
2 erindi.
„Reið eg yfir bárubreið / brunar sund, en jódynur ...“
„... ámur fylla úr þeim nám.“
1 erindi.
„Bjarnahöfn (rigndi 4 nætur og daga)“
„Skuggabaldur úti einn / öli daufu rennir ...“
„... himinraufar glennir.“
1 erindi.
„Í Glaumbæ var komið hret um nóttina“
„Nú er sumar í Köldukinn / kveð eg á millum vita ...“
„... en flugurnar springi af hita.“
1 erindi.
„Á Kristhaldi við Hjaltadal “
„Búðarloka úti ein / ætlar að gera á ferðum stans ...“
„... hún er úr nösum andskotans.“
1 erindi.
„Í Reykjavík 1842“
„Ursynningur yglir sig / eilífa veðrið skekur mig ...“
„... skyldi eg vera þetta sjálfur.“
1 erindi.
„Í Reykjavík 1842“
„Ursynningurinn eina nótt / ætlar að kæfa viku drótt ...“
„... svo búldi í grútar kakkanum.“
2 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „JH“
„Alþing hið nýja“
„Hörðum höndum / vinnur hölda kind ...“
„... góða þegna.“
12 erindi. Fyrir neðan, með annarri hönd: „J.H.“, „Páll Melsted skrifaði líklega sama árið (1840) sem Jónas orti.“
„Séra Þorsteinn Helgason“
„Hvarmaskúrir harmurinn sári / harðar æsti minnst er varði ...“
„... hann sá þig glöggt undir ísi bláum.“
5 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J. Hallgrímsson“
„Hvur veit nema konu svo / kviðlings æfihraki ...“
„... um kraki á hurðarbaki?“
1 erindi. Í athugasemd við stökuna kemur fram að Sigfús Jónsson (nú séra) hafi skrifað hana upp sumarið 1842 (eða veturinn 1841/42) og gefið „mér“. Undirskrifað: „24/8 G.S.“
„Alþing hið nýja“
„Hörðum höndum / vinnur hölda kind ...“
„... góða þegna.“
12 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J. Hallgrímsson“ Í athugasemd við ljóðið stendur: „Þetta hef eg skrifað fyrsta veturinn minn í skóla, eftir minni, því eg hafði þá, 41-42, nýlega lært kvæðið. Í hið prent. kvæði vantar 3. og 7. erindi hér og eins vantar í „Dagrúnarharm“ erindi, sem eg lærði þá eptir handr. síra Helga (biskups) er Jónas lagði hann út fyrir eða eptir bók, er hann léði honum (Kvæði Schillers); mun svo vera um fleiri kvæði er Jónas orti um árin 1839-40, 40-41 og 41-42, er hann var í R.vík. 29/8 G.S.“ (Bl. 22r (9)).
„Kysstu mig, hin mjúka mær! / þú ert sjúk ...“
„... því skálin er svo skær.“
1 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „B. Thorarensen“ Í athugasemd við kvæðið: „Skrifað upp eptir fyrirsögn frúarinnar á Brekku (Frú Einarsen), eða sem hún kenndi mér.“
„Kongens Minde - Reykjavíks Klubselskab den 28. januar 1841.“
„Det var sig engang en gammel mand / han bar sine aar med ære ...“
„... Kong Fredrik mindes :/: med kjærlighed :/: af alle.“
6 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J(ónas) H(allgrímsson). Prentað í Viðey, sungið af barnaskóla börnum í R.vík.“
„Móðir og faðir / mjúk og ástríkur ...“
„... til föðurhúsa.“
6 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J. Hallgrímsson“ Með blýanti og annarri hönd: „Sr. Ólafur Indriðason ritaði og sendi mér. P.M.“
„Séra Þorsteinn Helgason“
„Hvarmaskúrir harmurinn sári / harðar æsti minnst er varði ...“
„... hann sá þig glöggt undir ísi bláum.“
5 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J.H.“
„Jón Sighvatsson í dec. 1841.“
„Dýrðlegt er að sjá / eftir dag liðinn ...“
„... sést hún enn að morgni.“
9 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J.H.“
„Sólsetur ljóð - Dalmatískur lofsaungur úr fornöld“
„Hóglega, hæglega, / á hafsæng þíða ...“
„... blíður röðull þýður.“
17 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „(Sbr. „Attila“ af George Peter Rainsford James.) Rkv. 3/2 42. J.H.“
„Magnúsarkviða - Tvítugur flokkur. Jónas Hallgrímsson orti.“
„Úti sat und hvítum / alda faldi ...“
„... moldu vígðu hold.“
20 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J.H.“
„Jónas H. kvað til Finns Magnússonar“
„Gleðji þig guðs stjörnur / sem glæddi best ...“
„... ástjarðar ljúfusta ljós!“
1 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „Eftir handriti Páls föðurbróður míns.“
„Jónas til Finns Magnússonar“
„Gleðji þig guðs stjörnur / sem glæddi best ...“
„... ástjarðar ljúfusta ljós!“
1 erindi. Skrifað aftan á blað sem á stendur prentað: „497. Breytingartillaga“
„Kveðja Jónasar Hallgrímss. úr bréfi til H[?] 13. ágúst 1844.“
„Hvort sem að eg líð bót eða böl / bláa loft eða vítis kvöl ...“
„... samur þinn séra Trausti.“
1 erindi. Skrifað aftan á blað sem á stendur: „497. Breytingartillaga“ Nafnið Matthías Ólafsson er skrifað neðst.
„Eyjólfur ljóstollur var barnakennari, sótti um styrk af almannafé, en tvísýnt hvort hann fengist. Þá kvað Eyjólfur:“
„Ekki skelfir Eyjólfur haus / Íslands valda Tyrkinn ...“
„... fái eg ekki styrkinn.“
1 erindi. Skrifað á sömu „497. Breytingartillaga“ og hér að ofan.
„Um einhvern ritstjóra kvað hann þetta:“
„Skítögtugan skammaprest / skelli eg laga hrömmum ...“
„... með óbatnandi skömmum.“
1 erindi. Skrifað á sömu „497. Breytingartillaga“ og hér að ofan.
„Grátitlingurinn“
„Ungur var eg, og ungir / austan um land á hausti ...“
„... ugglaust mun eg þá huggast.“
17 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „Rv. 9/3 42. J.H.“
„Sækonan“
„Þokan yfir vík og vogi / votu fangi þögul grúfir ...“
„... mannsmynd kærst! enn um eg ræði.“
14 erindi. Fyrir neðan, með sömu hönd: „J.H.“ Í athugasemd, með sömu hönd: „Efnið er að nokkru leiti tekið eftir einu af smákvæðum Heines.“
„Strandsetan eftir Heine“
„Gæfur í loftinu ljúfi / líður í nætur blæ ...“
„... máninn er hátt yfir sæ.“
3 erindi.
„Álfreiðin (fyrir burð eftir Heine)“
„Stóð eg útí tunglsljósi, stóð eg út við skóg / stórir kommu skarar, af álfum þar var nóg ...“
„... eða var það feigðin sem kallar að mér?“
3 erindi.
„Der sang en fugl bag skyens ryg / og raabte ned paa jorden: ...“
„... du kaade fuglestemme?“
2 erindi. Fyrir neðan, með annarri hönd: „Jónas“
„Ef að þú hlýðir ekki mér / og öðrum hófremda gaurum ...“
„... í ráðhúsum á saurum.“
1 erindi. Fyrir neðan, með annarri hönd: „Konráð til Jónasar“
„Uppi á blaði ormurinn sat / og á það hafði nagað gat ...“
„... en ormurinn sagði: Engin veit, hver undir lá!“
2 erindi. Fyrir ofan kvæðið: „Klb. 439.“ Fyrir neðan, með annarri hönd: „Jónas og Konráð.“
Úr bréfi séra Jóns Brynjólfssonar í Kálfholti, dagsettu 10. ágúst 1888 um Jónas Hallgrímsson.
„Úr iðrunarvísu til Gísla Ísleifssonar Einarsens“
„Eg á bágt / mér er ami ...“
„... æ minn vin, eg vil gjöra yfirbót.“
1 erindi. Jón Brynjólfsson heyrði aldrei nema fyrsta erindið.
„Einu sinni bar þeim á milli Jónasi og Hjörleifi Guttormssyni, þá kastaði Jónas fram þessari stöku:“
„Hjörleifur reiði ríður mér á slig, / svo eg fjúk' ei flatur út í haga, ...“
„... Öxndælingar á mig reyri sig.“
1 erindi.
„Um sama leyti varð til þessi baga:“
„Ef hann sendir engla mergð / einum móti skratta, ...“
„... og fjóra missir hatta.“
1 erindi.
„Cura til Magnúsar Fraters“
„Magnús vinur! legg og lið / leggjum saman bæði ...“
„... fyrir þolinmæði.“
1 erindi.
„Um Benedikt Scheving“
„Benedikt Scheving skæður / við skötuhryggja glæður ...“
„... lykt af þér eins og lút.“
1 erindi.
„Til séra Búa Jónssonar“
„Skeifi skollafótur / skankalangi Búi ...“
„... Vont er, að sitji fleiri en einn á meisi.“
1 erindi.
„Um stúlku sem reið með skugga hatt“
„Æ, hvað níðir svanna sá / satans hattur ljótur ...“
„... eins og burlufótur.“
1 erindi.
„Niðurlags orð úr bréfi til sr. Jóns Brynjólfssonar“
„Efnið fór en andann þraut / ekki er hægt að tala ...“
„... einn hefur horn og hala.“
1 erindi.
„Eg vissi líka til (segir Sr. J.B.) að til var eftir Jónas skáldsaga, sem hét Skemmuþjófurinn:“
„Stjarnan var rúmlega komin í hádegisstað ...“
„... Álfur leggur sjálfur á hýðinguna.“
„Svona hér um bil var gangurinn í sögunni, bætir séra Jón við.“ Með blýanti, önnur hönd: „Fra Finnur Jónssyni D+[?] 1934. Har tidligri tilhort Ól. Davíðssyni.“
„Commentarius perpetuus!“
„Um vísurnar frá sr. Jóni Brynjólfssyni ...“
„... Meira um þetta hefi eg sagt Boga frænda, og kemur hann líklega í haust til ykkar.“
„Yðar Páll Melsteð. 2. sept. 82.“
Með blýanti, önnur hönd: „Fra Finnur Jónssyni D+[?] 1934. Har tidligri tilhort Ól. Davíðssyni “
„Taaren“
„Stor er venskabets magt / skjön er kjærligheds pagt ...“
„... O! saa væder mit stöv med en jaare.“
6 erindi.
„Af því að mér er mjög áríðandi ...“
„... viðvíkandi því, sem hér er óspurt um.“
„Skrifað í Reykjavík, 15. d. Marz-m. 1841. Jónas Hallgrímsson, candidatus philosophiæ.“
Prentað eintak af spurningum Jónasar um fiskveiðar. Prentað í Viðey.
Dagsett 21. apríl 1844. Ekki er vitað um sendanda en á bakhlið stendur: „Monsieur Bryniolsen. Reikivwick.“
„Kvæði J. Hallgrímssonar“
„Þú stóðst á tindi Heklu hám / og horfðir yfir landið fríða ...“
„... íbúum sínum skemtan ljá :/:“
2 erindi.
„Auvo“
„Armahin kallihin kielein / poinnuista sorjin ...“
„... Paiva ois kirkas.“
3 erindi. Skrifað með annarri hönd: „Kvæðið var meðtekið 24. ágúst 1901.“ „„Ásta“ eftir Jónas Hallgrímsson, snúið á finnsku af Th. W.“
„Úr ljóðabréfi Konráðs og Jónas til Br. Péturssonar 15. apríl (líkl.) 1837. “
„Við sem annars lesum lögin / og lítil höfum vængjaslögin ...“
„... Listamaðurinn lengi sér þar undi.“
3 erindi. Fyrir neðan með sömu hönd: „Kvæðið er eflaust lengra, en eg heyrði aldrei meira en þetta. Skrifað 18. júní 1896. P.M.“
Frásögn Páls Melsteðs er þeir Jónas bjuggu saman á Regensi 3G. N.5. Ásamt kvæðum Bjarna Thorarensens.
„Nú hverfur sólin / af himinbaug ...“
„... vekur álf og draug.“
1 erindi. Fyrir neðan með sömu hönd: „Ekki orti hann þá meira að því sinni.“ Í athugasemdum um kvæðið kemur fram að Jónas hafi ort þetta er Páll Melsteð hafi verið að raula „Nu lider dagen ...“ úr Elverhöj eftir J.L. Heiberg. Nánar um tilurð kvæðisins má lesa í blaðinu Ísland, (15. júní 1899), „Vísa eftir Jónas Hallgrímsson.“
„Við Bakkann neðra býsna fast / af boðaskellum hlunkar ...“
„... en séra Siggi krúnkar.“
1 erindi. Í athugasemd um kvæðið segir: „Árið 1840 urðu þeir saupsáttir séra Sigurður í Hraungarði og Dús kaupmaður á Eyrarbakka út af viðar kaupum, svo að til sýslumanns aðgjörða kom. Um það kvað Bjarni amtmaður.“
„Ágengur var hann / meðan hjá itum dvaldist ...“
„... stolnum undir steini.“
1 erindi. Í athugasemd um kvæðið segir, m.a.: „Þegar Bjarni Thorarensen var sýslumaður í Árnessýslu sat hann í Arnarbóli. Þangað kom til hans Jón Þórðarson (hinn ríki) í Móhúsum. Var þá um margt talað, þar á meðal um dauða, grafir og legsteina.“
„Fyrir gott alt eg þakka þér / og þinni ástar kvinnu ...“
„... né sýna nokkra sinnu.“
1 erindi. Í athugasemd um kvæðið segir: „Í bréfi til mín (dags. 18. okt. 1879) frá mágkonu minni, frú Steinunni í Klausturhólum). P.M.“
„Bleikur hestur barnið bar til grafar / honum jeg það á hendur fel ...“
„... með hnútinn aftan á.“
1 erindi. Í athugasemd um kvæðið segir: „Jónas Hallgrímsson lærði á barnsaldri vísu þessa í Öxnadalnum og ken[n]di Páli Melsteð.“
„Tel eg það vera tíkarmál / að tvinna sundur líkama og sál ...“
„... þó lífið linni.“
1 erindi. Í athugasemd um kvæðið segir: „Þessi vísa er einnig frá Jónasi Hallgrímssyni; Páll lærði hana af honum.“
„Frost og fjúk er fast á búk, / frosinn mergur í beinum ...“
„... að fá.“
1 erindi. Í athugasemd um kvæðið segir: „Sundmaður varð úti og vin hans dreymdi að hann kvæði. Skrifað upp sumarið 1907 eftir Páli Melsteð.“
„Þú, sem fyrir skemstu / skaust úr hýði ...“
„... á Þingvelli.“
2 erindi. Fyrir neðan með sömu hönd: „B.Th.“ Tvær aðrar útgáfur eru af síðari erindinu ásamt athugasemd. Úr sendibréfi, stílað á „Hávelbornum herra amtmanni Bjarna Thorarensen.“
„Þú stóðst á tindi Heklu hám / og horfðir yfir landið fríða ...“
„... Ísland skal lengi muna þig :/:“
Helga Kress, Söngvarinn ljúfi: um myndir og orð í kvæði eftir Jónas Hallgrímsson, 11, s. 101.
„Kjöbenhavn.“
6 erindi. Fyrir neðan með annari hönd: „Jónas Hallgrímsson sjálfur skrifaði 11. jan. 1839 þetta blað. P.M.“
Blöð/seðlar merkt 1-32, seinni tíma viðbót.
Líklegast að mestu með hendi Páls Melsteðs, snarhönd.
Ólafur Indriðason, snarhönd. (Bl. 25r-25v (11)).
Jónas Hallgrímsson, snarhönd. (Bl. 62r-63r (Mappa 3)).
Óþekktur skrifari, síðfljótaskrift. (Bl.5r-9r (3), 19r-22v (9), 51r-52r (27)).
Óþekktur skrifari, snarhönd. (Bl. 41r-41v (21)).
Óþekktur skrifari, snarhönd. (Bl. 49r-50v (26)).
Óþekktur skrifari, snarhönd. (Bl. 53r-53v (28)).
Óþekktur skrifari, snarhönd. (Bl. 55r-55v (29)).
Óþekktur skrifari, snarhönd. (Bl.59r (32)).
Óþekktur skrifari, snarhönd. (Bl. 60r-61v (Mappa 2)).
Band er frá mars 1996 (261 mm x 220 mm x 13 mm).
Pappaspjöld klædd fínofnum brúnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saurblöð tilheyra nýju bandi.Límmiði með safnmerki á kili.
Jafnframt fylgja fjórar gráar möppur:
Handritið er í ljósgrárri öskju (álímt efni) (282 mm x 232 mm x 36 mm). Límmiði á kili með safnmarki.
Var skrifað á Íslandi og í Kaupmannahöfn á árunum 1837-1931 skv. þeim ártölum er koma fram á blöðum/seðlum.
Handritið er ekki í Kålunds, Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter.
Handritið kom úr safni Boga Th. Melsteð árið 1930.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum, 20. desember 2023 til 3. janúar 2024.
Handritið er bundið í nýlegt band og fylgja með fjórar möppur og er allt í nýju hylki ásamt blöðum, sem lágu um handritið.
Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.
Skrá um innihald fylgdi en handritið er ekki í skrá Kålunds.