Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 1854 m I 4to

Collectiones et excerpta ad philologiam Islandicam, 1790-1810

Innihald

(1r-124v)
Vocabula islandica cum paralellismis
Upphaf

A er - *As ea uef. ahra, ...

Niðurlag

... veteres sæpe acternant.

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína; danska

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
124 blöð (ca. 35-212 mm x 158-170 mm). Auð blöð: 6v, 15v, 25v, 33v, 42, 49v, 51v, 53r, 62r, 66v, 80v, 82v, 88v, 92r, 94v, 104v, 114r, 116v, 121v, 123v.
Tölusetning blaða

Blaðmerking 1-124 með blýanti á neðri spássíu rektósíðna, síðari tíma viðbót.

    Kveraskipan

    Ellefu kver:

    • Kver I: blöð 1-11, 4 tvinn + 3 stök blöð.
    • Kver II: blöð 12-23, 4 tvinn + 4 stök blöð.
    • Kver III: blöð 24-35, 4 tvinn + 4 stök blöð.
    • Kver IV: blöð 36-45, 4 tvinn + 2 stök blöð.
    • Kver V: blöð 46-56, 4 tvinn + 3 stök blöð.
    • Kver VI: blöð 57-66, 4 tvinn + 2 stök blöð.
    • Kver VII: blöð 67-74, 4 tvinn.
    • Kver VIII: blöð 75-85, 4 tvinn + 3 stök blöð.
    • Kver IX: blöð 86-99, 4 tvinn + 6 stök blöð.
    • Kver X: blöð 100-110, 4 tvinn + 3 stök blöð.
    • Kver XI: blöð 111-124, 4 tvinn + 6 stök blöð.

    Umbrot

    • Eindálka.
    • Leturflötur er 190 mm x 148 mm.
    • Línufjöldi er 5-26.
    • Leturflötur er afmarkaður með tveimur lóðréttum strikum.

    Ástand

    • Blöð eru snjáð og dekkri á jaðri.
    • Texti sést víða í gegn (t.d. bl. 5v).
    • Bl. 39r er skrifað á hvolfi.

    Skrifarar og skrift

    Eiginhandrit Jóns Ólafssonar (eldri) frá Svefneyjum, sprettskrift, snarhönd.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur

    • Á fremra spjaldi er gamalt safnmark og handskrifað með blýanti: 124 blade 15/10 1984 Jr
    • Þó nokkuð um yfirstrikanir og leiðréttingar frá skrifara (t.d. bl. 1v, 8v).

    Band

    Upprunalegt band (213 mm x 175 mm x 15 mm).

    Pappírskápa, utanáliggjandi saumur (long-stitch binding, þ.e. sýnilegur saumur á ytra byrði bands).

    Handritið liggur með NKS 1854m II 4to, NKS 1854m III alfa 4to og NKS 1854m III beta 4to sem er pakkað saman í pappír og lagt á milli pappaspjalda bundna saman með borða (261 mm x 200 mm x 58 mm). Á kili er lítill brúnn miði frá Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 1854m || I-III a-b

    Kápa handritsins er snjáð.

    Heiti handritsins er á bókakápu.

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Handritið NKS 1854m 4to, Collectiones et excerpta ad philologiam Islandicam, er í tíu bindum:

    Handritið er tímasett til ca 1800 í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 297.

    Aðföng

    Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1986.

    Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.

    Aðrar upplýsingar

    Skráningarferill

    MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 30. janúar 2024.

    Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 248.

    Viðgerðarsaga
    Myndir af handritinu

    • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

    Notaskrá

    Lýsigögn
    ×

    Lýsigögn