„Relation“
Nánast sami texti og í Lbs 819 4to, bl. 37r-45r.
„Anno 1755 spjó Kötlugjá í Mýrdalsjökli ...“
„... þinglög. Slúttað 29da nóvember 1756. Jón Sigurðsson.“
Í Safn til sögu Íslands og íslenskrar bókmennta að fornu og nýju, IV, s. 234, kemur fram að Jón Sigurðsson sýslumaður hafi skrifað skýrslu sem Jón Steingrímsson prófastur hafi afritað í nokkrum eintökum og sent kunningjum sínum.
„Relation úr Kaupmannahöfn með síðustu skipum úr bréfi Mr. Magnúsar Ólafssonar til prestins síra Þorleifs Bjarnasonar. (Bl. 6v).“
Skrifaraklausan er fyrir neðan nafn Jóns Sigurðssonar, bl. 6v.
Í JS 158 fol. bl. 13v, kemur fram að „... sá lögspaki maður Jón Sigurðsson“ hafi skrifað skýrsluna sem er nánast sami texti Nks 1671 a I 4to, bl. 13v-15r.
Blaðmerking 1-6 með blýanti á neðri spássíu rektósíðna.
Eitt kver:
Óþekktur skrifari, en sennilega séra Magnús Ólafsson, fljótaskrift með kansellíbrotaskrift í fyrirsögn, 1r og snarhönd í nöfnum og heitum.
Handritin NKS 1671a I 4to, NKS 1671a II 4to, NKS 1671a III 4to, NKS 1671a IV 4to og NKS 1671a V 4to eru bundin saman í eina bók.
Aldur bands óþekkt (219 mm x 181 mm x 9 mm).
Bókaspjöld úr pappa klædd pappír með flæðimynstri. Kjölur og horn klædd brúnu leðri.Límmiði á fremra spjaldi með safnmerki.
Handritið er í nýlegri öskju (224 mm x 182 mm x 18 mm). Límmiði framan á með merki Árnastofnunar og safnmarki.
Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: „Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 1671, 4° | Nogle Breve og | Beretninger om | Eruptioner paa | Island: 1775, 1766, | 1767, 1785, 1821-23. |1 bind“.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. september 1986.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupamannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum, 6. október 2023 ; bætt við skráningu 16. janúar 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 197-198.