Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 85 k 4to

Fimmtíu píslarhugvekjur ; Ísland

Titilsíða

Þær fimmtíu heilögu píslar hugvekjur um pínu og dauða Drottins vors Jesú Christi með lærdóms fullri textans útskýringu gjörðar og saman skrifaðar. Af Vigúsi Jónssyni sóknar presti að Stöð í Stöðvarfirði í Austfjörðum. Skrifaðar vorum eptir Guðs burð. Anno 1760.(Bl. 1r).

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-120v)
Fimmtíu píslarhugvekjur
Titill í handriti

S:V:J: I. Um útgöngu Xti í Grasgarðinn. Vakna þú upp mín dýrð! Vakna þú upp psaltari og harpa. Ég vil árla upp vakna. Ps: 59.

Upphaf

Já vakna upp mín sál, hugskot og málfæri ...

Niðurlag

... og heilögum anda, so sem hún var að upphafi er enn nú og vera mun um allar aldir alda. Amen.

Notaskrá

Kom út á prenti, Fimmtíu píslarhugvekjur árið 1833 í Kaupmannahöfn.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 119 + i (200 mm x 155 mm).
Tölusetning blaða

  • Upprunalegar blaðsíðumerkingar í efra horni beggja síðna, 1-238. Sums staðar ógreinilegt vegna slits sérstaklega fremst og aftast. Ath. blaðmerkingar eru ekki í réttri röð, 11-22 (7r-12v).
  • Handritið hefur verið síðar blaðmerkt með blýanti á neðri spássíu, 1-119. Ath. blaðmerkingar eru ekki í réttri röð, 6-11, (7r-12v).

Kveraskipan

Ellefu kver:

  • Kver I: saurblað, bl. 1-17, stakt blað og 8 tvinn.
  • Kver II: bl. 18-23, 3 tvinn.
  • Kver III: bl. 24-35, 6 tvinn.
  • Kver IV: bl. 36-47, 6 tvinn.
  • Kver V: bl. 48-59, 5 tvinn.
  • Kver VI: bl. 60-71, 6 tvinn.
  • Kver VII: bl. 72-83, 6 tvinn.
  • Kver VIII: bl. 84-93, 5 tvinn.
  • Kver IX: bl. 94-105, 6 tvinn.
  • Kver X: bl. 106-117, 6 tvinn.
  • Kver XI: bl. 118-120, saurblað, 1 stakt blað og 1 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 175-185 mm x 140 +/- 1 mm
  • Línufjöldi 30-44.
  • Leturflötur er afmarkaður með þurroddi.
  • Griporð.

Ástand

  • Handritið er heilt, jaðar slitin, sérstaklega fremst og aftast (sbr. bl. 1r-4v, og 119r-120v).
  • Blettótt, en skerðir ekki texta (t.d. bl. 35r, 54v, 56r og 76r).
  • Texti sést í gegn (t.d. bl. 1v).
  • Bls. 11-22 (eldri blaðsíðumerking) eru ekki í réttri röð á milli bl. 6v-13r. Ætti að vera: bl. 6v, 8r-v, 9r-v, 12r-v, 7r-v, 10r-v, 11r-v, 13r.
  • Efri spássíur er skertar vegna afskurðar, sbr. bl. 24r-26r og á fleiri stöðum.

Skrifarar og skrift

Með hendi síra Vigfúsar Jónssonar, fljótaskrift með kansellíbrotaskrift á titilsíðu og fyrstu fyrirsögn á bl. 2r.

Skreytingar

Skreytt titilsíða, bl. 1r.

Fyrirsögn flúruð, bl. 2r.

Aðrir fyrirsagnir í frábrugnu letri,t.d. bl. 2v.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Ítarlegar neðanmálsgreinar og viðbætur við texta, sbr. bl. 25r og 75r.
  • Minni merkingar á spássíum, sbr. bl. 6r, 10r og 15r.
  • Á fremra saurblaði 1r stendur: Glg. Oddsen 1825.
  • Á fremra saurblaði 1v er gamlt safnmark og athugasemd: 119 bl. + 1 forstatsbald 15/10 -84 J(?)
  • Á aftari saurblaði er reiknisdæmi.

Band

Óvíst er um uppruna bandsins (202 mm x 164 mm x 18 mm).

Bundið í brúnan pappír.

Handritið er í nýlegri öskju (207 mm x 169 mm x 26 mm).

Límmiði framan á með safnmerki Árnastofnunar.

Fylgigögn

Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 85 k, 4° | Vigfus Jonsson | 1 bind

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett á síðari hluta 18. aldar í, Katalog Kålunds, nr. 456.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1986.

Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupamannahöfn.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum, 28. september 2023 ; bætti við skráningu 12. janúar 2024.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 165.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn