Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

NKS 68 4to

Nikodemusarguðspjall, 1800-1825

Tekstens sprog
islandsk

Indhold

(1r-22r)
Nikodemusarguðspjall
Rubrik

Evangelium Ste Nicodemi sem var einn höfðingi meðal Gyðinga og heimuglegur lærisveinn Jesú.

Incipit

Þetta skeði á því öðru ári keisarans Teberii í Róm í tíð Herodis kóngs þá Hannas og Casphas simon og Datan voru höfðingjar gyðinga og ...

Explicit

... Guð almáttugur stjórni oss með sinni náð og anda í Jesú nafni. Amen.

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír. Vatnsmerki og á saurblöðum merking C & I Hong.
Antal blade
ii + 22 + ii blöð (202-206 mm x 165-173 mm). Bl. 22v autt.
Foliering

Rektósíður blaðmerktar 1-22, seinni tíma viðbót með blýanti.

Lægfordeling

Sex kver:

  • Kver I: bl. 1-4 (2 tvinn 1+4, 2+3)
  • Kver II: bl. 5-8 (2 tvinn: 5+8, 6+7)
  • Kver III: bl. 9-12 (2 tvinn: 9+12, 10+11)
  • Kver IV: bl. 13-16 (2 tvinn: 13+16, 14+15)
  • Kver V: bl. 17-20 (2 tvinn: 17+20, 18+19)
  • Kver VI: bl. 21-22 (1 tvinn: 21+22)

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 185 mm x 143 mm.
  • Línufjöldi er 22-28 og í hverri línu eru um það bil 11 orð. Undantekningar eru á titilsíðu sem er með 17 línur og bl. 22r, síðasta síðan sem hefur 9 línur skrifaðar.
  • Leturflötur afmarkaður með línum dregnum með þurroddi.
  • Griporð.

Tilstand

  • Blöðin eru ljós en nokkrir brúnir blettir eru á ýmsum blöðum en skerða ekki texta.
  • Smá slit er á neðstu brún blaða á milli 2r-3v.
  • Ytri brún blaðs 13r er snjáð.
Skrifttype

Óþekktur skrifari, fljótaskrift með kansellíbrotaskrift í upphafi meginmáls (bl. 1r) og sem áherslur í texta (t.d. bl. 2r), snarhönd, bl. 1r, og sem bein ræða í texta: 8r, 9r, 10v-11r, 11v, 12r-v, 13r, 13v, 15r, 20r, 20v. 22r.

Udsmykning

Upphafsstafur meginmáls textans er stærri en aðrir stafir, teygir sig yfir 3 línur.

Tilføjelser
  • Á fremra spjaldi er gamalt safnmark.
  • Neðarlega á fremra saurblaði 1r stendur: Smudsbl. 1 for, skrifað með blýanti.
  • Neðarlega á fremra saurblaði 2r stendur: Smudsbl. 2 for, skrifað með blýanti.
  • Á bl. 1r er stór stimpill. Í gegnum efsta part hans hefur verið gert kringlótt gat í handritið. Stimpillinn virðist hafa komið á undan textanum. Á stimplinum stendur: No.4. Snd og Ende Rigsbankskilling Ran0nebærdie Betales med 41 skilling | Pontoppidan | Anden klasse for sum 300 til 400 Rks. R. B. inc. | 1815 | Ebbesen. Til hliðar á spássíunni er númerið 1550 skrifað niður.
  • Á bl. 5r er stimpill og gat. Til hliðar á spássíunni er númerið 1549 skrifað niður.
  • Á bl. 9r er stimpill og gat. Til hliðar á spássíunni er númerið 1551 skrifað niður.
  • Á bl. 15r er stimpill og gat. Til hliðar á spássíunni er númerið 1553 skrifað niður.
  • Á bl. 17r er stimpill og gat. Til hliðar á spássíunni er númerið 1552 skrifað niður
  • Hér og þar í handritinu eru línur undirstrikaðar og orð glósuð inn í textann (dæmi á bl. 6r) af óþekktum skrifara.
  • Neðarlega á aftara saurblaði 1r stendur: Smudsbl. 1 bag, skrifað með blýanti.
  • Neðarlega á aftara saurblaði 2r stendur: Smudsbl. 2 for, skrifað með blýanti.
Indbinding

Sennilega upprunalegt band frá fyrri hluta 19. aldar (206 mm x 174 +/- 1 mm x 6 mm).

Bundið í bláan pappír.

Handritið er í nýlegri öskju (212 mm x 183 mm x 6 mm).

Límmiði framan á öskju safnmarki.

Vedlagt materiale

Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: Håndskr. Afd. | Ny kgl. | Saml. | 68,|| (1 kd.)

Historie og herkomst

Herkomst

Handritið er tímasett til fyrri hluta 19. aldar í Katalog Kålunds, nr. 454.

Stimpillinn er með danskri skrift og ártalinu 1815, þannig uppruni pappírsins er líklega frá Danmörku og skrifað hefur verið eftir þann tíma, en ekki er vitað hvenær eða hvar handritið var skrifað.

Erhvervelse

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1986.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

MJG uppfærði skráningu 7. september 2023 og 8. januar 2024.

BS aðlagaði kóðann samkvæmt TEI P5 reglum, 2. maj 2023.

EJ skráði handritið april 2023.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 165.

Bevaringshistorie
Billeder

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Bibliografi

[Metadata]
×

[Metadata]