Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 1236 fol.

Variantes lectiones úr Sturlunga sögu, 1700-1745

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r-8v)
Variantes lectiones úr Sturlunga sögu
Titill í handriti

Hér eftirskrifað er athuganda í þessari sögu.

Vensl

Hefur áður tilheyrt GKS 1012 fol.

Upphaf

Hún er í titlum sögð skrifuð og saman dregin af Snorra Sturlusyni ...

Niðurlag

... urðu þeir varir við boðana.

Athugasemd

Hér eru leiðréttingar og afbrigði úr handriti að Sturlungu Gks 1012 fol. auk skýringa á nokkrum úreltum orðum sem ekki komu fyrir í þessu eintaki, en fundust í Íslendingasögu höfundar.

1.1 (1r)
Varð Hafliði af höndum
Upphaf

Varð Hafliða af höndum / hringsbaldr tugi gjalda ...

Niðurlag

... allvísum Þórgilsi.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 1. þætti, 11. kafla.

1.2 (1r)
Vaxa blástrar
Upphaf

Vaxa blástrar / af bekk þaðan ...

Niðurlag

... af hrópum yðrum.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 1. þætti, 13. kafla. Þórður kveður.

1.3 (1v)
Það er válítið
Upphaf

Það er válítið / þó vér reptum ...

Niðurlag

... af kóna sínum.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 1. þætti, 13. kafla. Vísa kveðin til Þórðar.

1.4 (2v)
Mætti segjum sættum
Upphaf

Mætti segjum sættum / sandkorn fyrir standa ...

Niðurlag

... öll þjóð fara kölluð.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 1. þætti, 26. kafla.

1.5 (4v)
Reið ég fyrir dyr og dúðak
Upphaf

Reið ég fyrir dyr og dúðak / dyn háskutils brynju ...

Niðurlag

... Kálfr matgjafir hálfar.

Athugasemd

3 erindi.

Vísa úr 4. þætti, 9. kafla.

1.6 (4v)
Nú hefir hringbirkis hverki
Upphaf

Nú hefir hringbirkis hverki / hlynir veit ég á því skynjar ...

Niðurlag

... kýr né land á Mýrum.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 4. þætti, 13. kafla.

1.7 (4v)
Heyrða ég Hrafni firða
Upphaf

Heyrða ég Hrafni firða / Hyrtalandi ámæla ...

Niðurlag

... eiturþreyngs fyrirleitinn.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 4. þætti, 14. kafla.

1.8 (4v)
Öld segir upp að felli
Upphaf

Öld segir upp að felli / ás ...

Athugasemd

Bara fyrsta lína.

Úr 4. þætti, 46. kafla.

1.9 (5r)
Lét af mér hinn mæri
Upphaf

Lét af mér hinn mæri / mót eflandi spjóta ...

Niðurlag

... heljar disk að velja.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 6. þætti, 11. kafla.

1.10 (5v)
El-grundar bjarg þú öndu
Upphaf

El-grundar bjarg þú öndu / æðstir þjóðkóngur nærstr ...

Niðurlag

... Páls bróður friði sælu.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 7. þætti, 42. kafla.

1.11 (6r)
Seg þú Þorvarði
Upphaf

Seg þú Þorvarði / þessa grímu ...

Niðurlag

... syni oddvita.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 9. þætti, 34. kafla.

1.12 (6r)
Þá var betra
Upphaf

Þá var betra / er fyrir baugum réð ...

Niðurlag

... og hans synir.

Athugasemd

1 erindi.

Vísa úr 9. þætti, 34. kafla.

2 (9r-10v)
Útskýring helstu fornyrða
Titill í handriti

Fáorð útskýring hinna helstu fornyrða

Upphaf

1. Óskapuður, ekki af skapi ...

Niðurlag

... lögðu árar í háreiðar.

Athugasemd

Frá bl. 9r blandar höfundur saman íslensku og latínu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
10 blöð (204-328 mm x 80-166 mm). Bl. 8v er autt.
Tölusetning blaða

Rektósíður blaðmerktar á neðri spássíu með brúnum trélit 1-10.

Kveraskipan

Tvö kver:

Umbrot

  • Eindálka.
  • Blöðin eru misstór.
    • Bl. 1r-6v:
      • Línufjöldi er 59-65.
      • Leturflötur er 297-319 mm x 90-99 mm.
    • Bl. 7r-8v:
      • Línufjöldi er 16-35.
      • Leturflötur er ca 198 mm x 76 mm.
    • Bl. 9r-10v:
      • Línufjöldi er 8-35.
      • Leturflötur er ca 173 mm x 129 mm.
      • Leturflötur afmarkaður með broti í blaði.
  • Griporð á bl. 1v og 9v.

Ástand

  • Blöð misdökk og snjáð á jöðrum, ekkert sem skerðir texta.
  • Blettur, skerðir aðeins texta (bl. 2r).

Skrifarar og skrift

Skrifari Eyjólfur Jónsson prestur, einhvers konar kansellískrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Handritið var í nýlegu bandi þegar það var skráð í spjaldskrá (345 mm x 174 mm x 3 mm).

Bundið í pappaspjöld með léreftskili. Stimpill framan á með merki Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn: Bibliotheca regia havniensis.

Handritið er í nýlegri öskju (350 mm x 178 mm x 10 mm).

Límmiði framan á öskjunni.

Fylgigögn

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til fyrri hluta 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 162.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. ágúst 1986.

Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

MJG skráði samkvæmt TEI P5 19. september 2023 ; lagfærði eftir yfirlestur ÞS 9. janúar 2024 og 9. apríl 2024.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 142.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn