„Forsög til en Physisk, Geographisk og Historisk Beskrivelse over de islanske Is-biærge. I Anledning af en Reise til de fornemste deraf i aarene 1792 til 1794 - med 4 Situations- og 8 Prospect-Tegninger.“
Sveinn Pálsson, 2004, bls. 1-133
Ferðabók Sveins Pálssonar, 1945, bls. 423-552
Þetta er hreinrit eftir fyrstu gerð textans sem upphaflega er hluti af ferðadagbók Sveins í ÍB 2 fol. Sveinn mun hafa sent þetta handrit til Naturhistorisk Selskab í Kaupmannahöfn sem hafði kostað ferðir hans um landið. Félagið taldi það ekki vera í sínum verkahring að gefa út rit af þessu tagi. Topographisk Selskab í Osló tók það til útgáfu en ekkert varð úr framkvæmdinni.
„At Snee- og Isbiærge...“
„...med de forhen opregnede Ödelæggelser.“
Pappír með vatnsmerkjum.
Einn skrifari. Samkvæmt seinni tíma athugasemd á bl. 1r er þetta eiginhandarrit Sveins Pálssonar.
Seinni tíma viðbót á bl. 1r: „Sveinn Pálsson Autogr.“
Seinni tima viðbót á fremra saurblaðinu: „Oldenburg“.
Bundið í kjöl og horn (350 mm x 235 mm) leður á kili og hornum, spjöld klædd pappír; með gylltum strikum á kili og rauðum flöt með gylltum titli: „Beskrifelse over de Islandske Iisbjerge“.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 109, en af því að þetta er hreinrit eftir fyrstu gerð textans sem varð til meðan á ferðinni stóð (henni lauk 1794) og af því að handritið var sent til Naturhistorie Selskab í Kaupmannahöfn sama ár, hlýtur það að hafa verið skrifað 1794 (sjá Ferðabók Sveins Pálssonar, bls. x).
Bókin var líklega einhvern tíma í eigu einstaklings með nafninu Oldenburg (sjá Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 109)
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. ágúst 1986. Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
Kristian Kålund frumskráði í Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 109.
BS skráði handritið rafrænt 25. november 2022 með hliðsjón af upplýsingum frá Má Jónssyni.