Meðal efnis er Geðfró, Tímaríma eftir Jón Sigurðsson, „Sendibréf síra Þórarins Jónssonar“, „Um konur í Ljósavatnssókn“, „Almanaksvísur Ólafs Þorkelssonar í Háagerði“ og fleira.
Pappír.
Skinnband.
Handritið virðist hafa verið á Frostastöðum í Skagafirði. Í því má sjá nafnið Rannveig Jónsdóttir, sem gæti verið Rannveig, eiginkona Jóns Espólín. Víða er nafnið Ragnheiður Jónsdóttir skrifað í bókina, ásamt ýmsum öðrum nöfnum. Á blaði 95r eignar Valgerður Jónasdóttir á Stóru-Ökrum sér bókina.
Kom úr Íslandssafni en barst þangað meðal prentaðra bóka sem Vilborg Björnsdóttir afhenti í október 2022.