Skráningarfærsla handrits

Lbs 5295 8vo

Samtíningur ; Ísland, 1800

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Samtíningur
Athugasemd

Samtíningur, mest trúarlegs efnis. Calendarium, ýmis kvæði, m.a. eftir Guðmund Bergþórsson (þ. á m. Heimspekingaskóli), Draumgeisli, Heilræðaríma o.fl.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
61 blað (158 mm x 102 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd; skrifari óþekktur.

Band

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, um 1800.
Ferill

Í bandi hefur verið bréf til Jóns Guðmundssonar á Lækjarskógi í Laxárdal.

Á bl. 57v stendur „Ásmundur Pálsson á Gaul 1807 50. ad aldre.“ Ef til vill er handritið skrifað með hans hendi.

Á bl. 61v hefur Sólmundur Jónsson skrifað nafn sitt sem eigandi bókar.

Aðföng

Lbs 5257-5302 8vo. Afhent 21. september 2022 af Sigurjóni Páli Ísakssyni en handritin eru úr safni Böðvars Kvaran. Sigurjón keypti handritin í Bókakaffinu í Ármúla á tímabilinu 9. október 2021 – 17. september 2022, fyrir milligöngu Bjarna Harðarsonar og Jóhannesar Ágústssonar. Bókakaffið keypti safn Böðvars árið 2021. Sjá einnig Lbs 1073-1077 fol. og Lbs 5762-5786 4to.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 9. febrúar 2023 ; úr óprentaðri handritaskrá.
Viðgerðarsaga
Rannver H. Hannesson gerði við í nóvember 2022.
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Samtíningur

Lýsigögn