Skráningarfærsla handrits

Lbs 5290 8vo

Compendium Historiæ Universalis ; Ísland, 1783

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Compendium Historiæ Universalis
Titill í handriti

Compendium Historiæ Universalis. In usum Scholæ Schalholtinæ introductum

Athugasemd

Útdráttur úr riti L. Holbergs Synopsis Historiæ Universalis, 1733 (samið fyrir nemendur í latínuskólum).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
95 + i blöð (161 mm x 106 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd; skrifari óþekktur.

Band

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, líklega 1783.
Ferill

Handritið mun fyrst hafa verið í eigu Brynjólfs Sigurðssonar Sívertsen, síðar prests á Útskálum (sbr. krot á aftara saurblaði: B. Sig.). Síðar gekk það til stjúpsonar hans, Helga G. Thordarsen, síðar biskups (sbr. áritun hans á bl. 2r). Loks til sonarins Sigurðar Brynjólfssonar Sívertsen, síðar prests á Útskálum (sbr. áritun „S. Brinj. 1823“ á bl. 1r). Neðst á bl. 1r, í hægra horni, virðist standa LL = Lupus loricatus (brynjaður úlfur). Afi Brynjólfs var Brynjólfur Thorlacius sýslumaður á Hlíðarenda í Fljótshlíð, en hann mun einnig hafa notað þetta bókmerki, eins og Brynjólfur Sveinsson biskup.

Í upphafi handritsins stendur að nú sé árið 1783, og má því ætla að handritið sé skrifað það ár. Þá var Brynjólfur Sívertsen 16 ára. Ef til vill er ólíklegt að handritið sé með hans hendi, en hann var þá við nám hjá Helga Sigurðssyni konrektor í Skálholti. Sigurður sonur Brynjólfs var 15 ára þegar hann fékk handritið 1823.

Aðföng

Lbs 5257-5302 8vo. Afhent 21. september 2022 af Sigurjóni Páli Ísakssyni en handritin eru úr safni Böðvars Kvaran. Sigurjón keypti handritin í Bókakaffinu í Ármúla á tímabilinu 9. október 2021 – 17. september 2022, fyrir milligöngu Bjarna Harðarsonar og Jóhannesar Ágústssonar. Bókakaffið keypti safn Böðvars árið 2021. Sjá einnig Lbs 1073-1077 fol. og Lbs 5762-5786 4to.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 7. febrúar 2023 ; úr óprentaðri handritaskrá.
Lýsigögn
×

Lýsigögn