Skráningarfærsla handrits

Lbs 5280 8vo

Rímur af Ármanni ; Ísland, 1851

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Rímur af Ármanni
Athugasemd

Skrifaðar eftir eiginhandarriti skáldsins.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
58 + i blöð (157 mm x 99 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd; skrifari óþekktur.

Band

Skinnband.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, 1851.
Ferill

Á bl. 1v stendur: Rímur þessar á Elínborg Ólafsdóttir á Huppahlíð. Og með yngri hendi: Magnús Guðlaugsson á Valshamri á þessar rímur gefnar af Sólrúnu S[æ]m[undsdóttur 1878. Á aftara saurblaði stendur: Tómasi Guðmundssyni á Litlu-Þúfu. Þar er einnig nafn Jósefs Björnssonar á Huppahlíð.

Aðföng

Lbs 5257-5302 8vo. Afhent 21. september 2022 af Sigurjóni Páli Ísakssyni en handritin eru úr safni Böðvars Kvaran. Sigurjón keypti handritin í Bókakaffinu í Ármúla á tímabilinu 9. október 2021 – 17. september 2022, fyrir milligöngu Bjarna Harðarsonar og Jóhannesar Ágústssonar. Bókakaffið keypti safn Böðvars árið 2021. Sjá einnig Lbs 1073-1077 fol. og Lbs 5762-5786 4to.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 30. janúar 2023 ; úr óprentaðri handritaskrá.
Lýsigögn
×

Lýsigögn