Skráningarfærsla handrits

Lbs 5254 8vo

Kvæðasafn ; Ísland, 1900-1955

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Kvæði
Athugasemd

Kvæðasafn, að mestu með hendi Daða Davíðssonar en innan um eru eldri blöð.

Nafngreindir höfundar: Helga Jónsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Kristján Ívarsson, Friðgeir Árnason, Steindór Briem, Benedikt Magnússon, Björn Guðmundsson, Hjálmar Jónsson (m.a. Rímur af Hjaðningavígum), Sigvaldi Jónsson, B[jörn] Lúðvíg Blöndal, Ólafur Briem, Jón Guðmundsson (Hrakningsríma), Björn Björnsson (Hrakningsríma), Þorlákur St. Blöndal, Hans Natansson og Bjarni Sigurðsson (Samkveðlingar), Lýður Jónsson og Ólafur Guðmundsson (Samkveðlingar), Þorsteinn Jónsson á Dvergasteini (Píkuraun), Sigurður Breiðfjörð (Rímur af Hans og Pétri), Þorlákur Þórarinsson á Ósi (Tíðavísur), Jón Sigurðsson (Tímaríma), Sveinn Hannesson, Símon Dalaskáld.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
332 blöð. Margvíslegt brot.
Skrifarar og skrift
Ein hönd (að mestu); skrifari:

Daði Davíðsson

Band

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, á fyrri hluta 20. aldar, en sumt fyrr.
Aðföng

Lbs 5239–5255 8vo, afhent 20. september 2001 af Kristínu Indriðadóttur. Öll handritin koma úr safni Daða Davíðssonar bónda á Gilá í Vatnsdal, A-Hún. og eru sum rituð af honum. Þau voru síðar í eigu föður Kristínar, Indriða Guðmundssonar bónda á Gilá, en hann var systursonur Daða. Handritin voru fyrst afhent Stofnun Árna Magnússonar, sennilega á tíunda áratug tuttugustu aldar en í lok árs 2000 var ákvörðun tekin um að varðveita þau á handritadeild Landsbókasafns. Sjá einnig Lbs 5744–5757 4to.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 10. ágúst 2022 ; úr óprentaðri handritaskrá.
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Kvæði

Lýsigögn