Pappír.
Búi Þorvaldsson segir m.a. svo um handritið á miða er með liggur: „Hún berst vestur í Barðastrandarsýslu með Kristjáni Erlendssyni járnsmið og á uppboði eftir hann hreppir hana Kristján Arngrímsson síðast bóndi í Norðurbotni í Tálknafirði, en sonur hans Arngrímur Valagils gaf hana Davíð Einarssyni, þegar þeir voru við nám í Sauðlauksdal“, en Davíð Einarsson verslunarmaður, áður í Flatey og Ólafsdal, gaf Búa kverið.
Innan á fremri kápu eru nöfnin Kristján Erlendsson og Rannveig Ólafsdóttir.
Lbs 4178-4181 8vo, gjöf 31. mars 1977 frá Búa Þorvaldssyni mjólkurfræðingi í Reykjavík, um hendur Lárusar H. Blöndal.
Arnheiður Steinþórsdóttir frumskráði 18. ágúst 2020.
Handritaskrá, 4. aukabindi, bls. 267-268.