„Þáttur af Auðuni Íslending í rímnaljóð settur af Ísleifi Ásgrímssyni bónda í Svínafelli í Öræfum“
„Sá í fréttum maður má / megni eitthvað segja ...“
4 rímur. Skrifað að Brattagerði 26. júlí 1888 af Halldóri Kjartanssyni.
„Rímur af Hálfdáni konungi gamla og sonum hans, orktar af Hannesi Bjarnasyni presti að Ríp“
„Mér að laga mærðar klið / margt vill stundum hamla ...“
30 rímur og eftirmáli. Skrifað eftir prentaðri útgáfu frá 1878.
„Sagan af hinum ágæta Hektor og köppum hans“
„Í Tyrklandi ríkti sá kongur er Kamasías hét, hann var vitur maður og vinsæll ljúfur og lítillátur ...“
Pappír.
Nöfn í handriti: Arngrímur Arason (fremra skjólblað v), Bergur Jónsson (aftara skjólblað v) og Guðrún Jónsdóttir á Austurhól í Nesjum (aftara skjólbað v).
Lbs 4080-4081 8vo, keypt 16. nóvember 1974 af Helga Tryggvasyni bókbindara úr dánarbúi séra Skarphéðins Péturssonar í Bjarnanesi í Nesjum (d. 5. júlí 1974).
Arnheiður Steinþórsdóttir frumskráði 14. august 2020.
Handritaskrá, 4. aukabindi, bls. 254.