„Rímur af Friðrik landsjórnara eftir Sigurð Breiðfjörð 1838“
„Herkju frosti hefur í / heilinn á mér staðið …“
Fimm rímur.
„Ríma af Alkoni Skeggjabróður eftir Sig. Breiðfjörð, eftir bón þegar hann var gestkomandi í Efranesi“
„Komdu hingað, kvæðanorn / krafta veika stoða …“
46 erindi.
„Níðingsafdrif, ort af Sig. Breiðfjörð“
Átta erindi.
„Ljóðabréf eftir S. Breiðfjörð“
„Yður finna, auðarhlín / að mér fýsnir sækja …“
48 erindi.
Pappír.
Innbundið.
Lbs 3623-3630 4to, gjöf til Íslands frá Sigurði Bárðarsyni smið, er bjó um skeið á Jörfa, en fluttist til Vesturheims sumarið 1886. Sonur Sigurðar, Leo Breiðfjörð, sendi Háskóla Íslands handritin 1952, en síðan voru þau afhent Landsbókasafni til eignar. Sum handritin eru með nafni séra Helga Sigurðssonar á Melum, en handrit úr fórum hans voru send börnum hans vestur um haf að honum látnum 1889.
Sbr. Lbs 3623-3630 4to.
Til Þjóðminjasafns runnu úr þessari sömu gjöf Syrpa séra Helga Sigurðssonar á Melum (nr. 15175) og ljóðakver með hendi séra Helga og Helga sonar hans 1867-1868 (nr. 15174).
Skráning Gríms M. Helgasonar og Lárusar H. Blöndal á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 3. aukabindi, bls. 128-129.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 16. ágúst 2017.