Lbs 2393 8vo var upphaflega eitt handrit en skiptist nú í a og b. Bæði Lbs 2393 a og b eru að mestu sundurlaus kvæðatíningur, en margs konar kveðskapur er það helsta sem þar er, t.d. sálmar, kvæði, ljóðabréf og fleira. Ofangreindir höfundar eru nafngreindir í bæði a og b, en meirihluti kvæðanna er í Lbs 2393 a 8vo. Kveðskapurinn eftir Gísla Konráðsson er í Lbs 2393 a 8vo eignaður syni hans, Brynleifi. Hann mun þó vera eftir Gísla, enda var Brynleifur einungis sex ára er hann lést.
„Biðils ríma“
„Aðfarandi efnið rýra, / innir það að dyggða hreinn, …“
Með í handriti liggur þessi ríma. Hún er ýmist eignuð Jóni Jónssyni á Jökli í Eyjafirði eða Jóni Þorsteinssyni úr Fjörðum. Í ættarbók Bjarna Jóhannessonar frá Sellandi (Lbs 1399 II 8vo, bls. 707) er hún þó sögð vera eftir Jón Þórarinsson frá Skógum (Rímnatal 1966, bls. 76).
Pappír.
Óinnbundið.
Lbs 2391-2394 8vo, keypt 1932 af Andreu Filippusdóttur frá Ísafirði.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 336.
Kjartan Atli Ísleifsson frumskráði 26. mars 2024.