Meðal efnis eru heilræðavísur, Gimsteinn, Hugbót, Lífsleiðing, Lilja, Píslargrátur og Píslarminning.
Skreyttir upphafsstafir, sumir litskreyttir.
Teikning af kastala á bl. 20v.
Skinnband.
Meðal handrita sem safnið keypti af Sighvati Gr. Borgfirðingi með samningi 20. júní 1906 og afhent voru að fullu eftir andlát hans 1930.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 441.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 26. júní 2023.