Hér er ljóðasafn Jóns Jónatanssonar skálda með hans eigin hendi. Í sér bandi er „Viðburðabálkur Íslands og tímatal“, ljóðabálkur um sögu Íslands í 399 erindum. Kvæðin í ljóðasafninu eru ort við ýmis tilefni, sumt er á lausablöðum en annað bundið saman.
Pappír.
Sumt bundið saman.
Sent 1929 að gjöf frá tengdadóttur höfundar (óvíst hvaða tengdadóttur).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 440-441.
Kjartan Atli Ísleifsson frumskráði 27. febrúar 2024.