Innihald handritsins eru ræður eftir séra Guðmund Bjarnason á Hólmum og séra Árna Helgason í Görðum, fluttar við útför Geirs Vídalín biskups. Einnig eru grafskriftir og eftirmæli, flutt við sama tilefni, eftir séra Árna og Magnús Stephensen dómstjóra í Viðey.
Pappír.
Pappírsband.
Lbs 2062-2077 8vo, keypt 1922 úr dánarbúi Jónasar Jónssonar.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 401.
Kjartan Atli Ísleifsson frumskráði 10. október 2023.