Kvæði Bólu-Hjálmars eru í eiginhandarriti og kvæði Jóns Hjaltalíns með hendi Halldórs á Öxnafelli. Meðal efnis er kvæðið Skjöldur eftir Eyjólf Bjarnason.
Brot.
Pappír.
Lbs 1622-1670 8vo eru keypt 1911 og höfðu verið í eigu Stefáns Jónssonar alþingismanns á Steinsstöðum.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 320.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði 18. janúar 2021.