„Vísir eður R...g Materia til yngstu Íslands ... stuttlega upp skrifað á Ási í Melasveit af Jóni Eyjólfssyni yngra úr ýmsum bókum Anni Mdccix“
Meðal efnis eru annálar, biskupatal, lögmannatal, ættartölur og kvæði. Framan við er tileinkun til Odds lögmanns Sigurðssonar.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 227.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, September 06, 2022.