Aftan við eru fest 8 blöð með hendi frá um 1850 og eru á þeim fáein kvæði eftir ónafngreinda menn. Meðal efnis eru Veronikukvæði, Einsetumannskvæði og Brúðkaupssálmur.
Jón Þorkelsson fékk handritið 1888 frá Bjarna Þorkelssyni, bróður sínum, en áður hefur átt Guðmundur Magnússon í Ólafsvík 1882.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 225-226.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 5. september 2022.