Skráningarfærsla handrits

Lbs 142 8vo

Steingrimiana ; Ísland, 1700-1845

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Steingrimiana, þ.e. ljóðasamstæður
Athugasemd

Steingrimiana, þ.e. nokkrar ljóðasamstæður á íslensku og latínu, eftir Steingrím biskup, föður hans, síra Jón og stöku menn aðra; nafngreindir eru síra Jón Þorláksson á Bægisá og síra Torfi Jónsson á Breiðabólstað.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
4 + 142 blaðsíður (170 mm x 104 mm).
Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur ; skrifarar ótilgreindir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Efnisyfirlit á saurblaði fremst með hendi Páls Pálssonar stúdents.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, á 18. og 19. öld.
Ferill

Úr safni Steingríms Jónssonar biskups og er víða ritað á sendibréf.

Aðföng

Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 9. september 2020.

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 33-34.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn