Kóngsbréfa- og tilskipanasafn 1541-1711 og viðaukið 1731-1741, ásamt nokkrum réttarbótum Noregskonunga.
Pappír.
Handritið er að mestu með hendi eins af skrifurum Árna Magnússonar prófessors, Þórðar Þórðarsonar.
Þó bregður þar fyrir öðrum höndum, t.d. Árna Magnússonar.
Síðasti hluti IV. bindis mun vera með hendi eins af skrifurum Jóns Árnasonar biskups.
Lbs 54-63 8vo eru úr safni Hannesar Finnssonar biskups.
Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. juni 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 31. marts 2020.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 15.