Skráningarfærsla handrits

Lbs 5773 4to

Um Bjarna Pétursson og hans afkomendur, annar hluti hluti ; Ísland, 1900

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Samtíningur um Bjarna Pétursson og hans afkomendur
Athugasemd

Uppskrift af Lbs 1535 4to með hendi Magnúsar Jónssonar í Tjaldanesi.

Vélritað efnisyfirlit framan við.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
ii + 388 + ii blöð (197 mm x 156 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd; skrifari:

Magnús Jónsson

Band

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, um 1900.
Ferill

Á titilblaði er stimpill með nafni Boga Sigurðssonar, Hvammsfirði. Á stöku stað eru athugasemdir með blýanti með hendi Þorsteins Þorsteinssonar sýslumanns, en hann fór eftir þessu handriti þegar hann skrifaði ævisögu Magnúsar Ketilssonar.

Aðföng

Lbs 5762-5786 4to. Afhent 21. september 2022 af Sigurjóni Páli Ísakssyni en handritin eru úr safni Böðvars Kvaran. Sigurjón keypti handritin í Bókakaffinu í Ármúla á tímabilinu 9. október 2021 – 17. september 2022, fyrir milligöngu Bjarna Harðarsonar og Jóhannesar Ágústssonar. Bókakaffið keypti safn Böðvars árið 2021. Sjá einnig Lbs 1073-1077 fol. og Lbs 5257-5302 8vo.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 1. desember 2022 ; úr óprentaðri handritaskrá.
Lýsigögn
×

Lýsigögn