Þessarar kvæðabókar annar partur rímnaflokka fáeina og svo nokkur spaugskvæði um ýmislegt
Pappír.
Níels Jónsson (hugsanlega)
Sett á safnmark 2022.
Innan á kápu stendur: „Daði Davíðsson“. Á titilblaði stendur: „D. Níelsson hr. 1842“. Aftan á titilblaði: „Sigurbjörg“ (átti bókina). Aftan við rímurnar stendur: „handrit skáldsins“. Aftan á sama blaði: „D. Níelsson“, „Sveinn Bjarnason“, „Daði Davíðsson“. Á öftustu síðu stendur: „Níels Jónsson“.
Lbs 5744–5757 4to, afhent 20. september 2001 af Kristínu Indriðadóttur. Öll handritin koma úr safni Daða Davíðssonar bónda á Gilá í Vatnsdal, A-Hún. og eru sum rituð af honum. Þau voru síðar í eigu föður Kristínar, Indriða Guðmundssonar bónda á Gilá, en hann var systursonur Daða. Handritin voru fyrst afhent Stofnun Árna Magnússonar, sennilega á tíunda áratug tuttugustu aldar en í lok árs 2000 var ákvörðun tekin um að varðveita þau á handritadeild Landsbókasafns. Sjá einnig Lbs 5239–5255 8vo.