Skráningarfærsla handrits

Lbs 5746 4to

Kvæðabók ; Ísland, 1800-1899

Titilsíða

Þessarar kvæðabókar annar partur rímnaflokka fáeina og svo nokkur spaugskvæði um ýmislegt

Athugasemd
Virðist óheil.
Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Formáli
Efnisorð
2
Rímur af Flóres og Banseflúr
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 32 [+ 2 + 4 laus] blöð (205 mm x 158 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd; skrifari:

Níels Jónsson (hugsanlega)

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, á 19. öld.
Ferill

Sett á safnmark 2022.

Innan á kápu stendur: Daði Davíðsson. Á titilblaði stendur: D. Níelsson hr. 1842. Aftan á titilblaði: Sigurbjörg (átti bókina). Aftan við rímurnar stendur: handrit skáldsins. Aftan á sama blaði: D. Níelsson, Sveinn Bjarnason, Daði Davíðsson. Á öftustu síðu stendur: Níels Jónsson.

Aðföng

Lbs 5744–5757 4to, afhent 20. september 2001 af Kristínu Indriðadóttur. Öll handritin koma úr safni Daða Davíðssonar bónda á Gilá í Vatnsdal, A-Hún. og eru sum rituð af honum. Þau voru síðar í eigu föður Kristínar, Indriða Guðmundssonar bónda á Gilá, en hann var systursonur Daða. Handritin voru fyrst afhent Stofnun Árna Magnússonar, sennilega á tíunda áratug tuttugustu aldar en í lok árs 2000 var ákvörðun tekin um að varðveita þau á handritadeild Landsbókasafns. Sjá einnig Lbs 5239–5255 8vo.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 18. júlí 2022 ; úr óprentaðri handritaskrá.
Lýsigögn
×

Lýsigögn