„Rímur af Trójumannabardaga og eyðilegging Trójuborgar, kveðnar af Guðmundi Bergþórssyni árið 1690“
„Fljóta verður ferjan Hárs / fram úr sagnar veldi …“
„Þessar rímur eru upp skrifaðar eftir rifnu og lúðu handriti skrifuðu af Gunnlaugi Guðmundssyni á Svarfhóli í Dölum (líklega Miðdölum) um 1800. Miðhúsum, Akranesi 29. janúar 1914. Kári S. Sólmundarson (88v).“
26 rímur.
„Rímur af Atla Ótryggssyni, kveðnar af Þórólfi á Bjargarsteini árið 1873“
„Hátt minn gali hani Kjalars vakinn, / kæta hal og kyrtla Hrund …“
„Endað að skrifa rímurnar 21. febrúar 1914 af Kára S. Sólmundarsyni, Miðhúsum, Akranesi (111v).“
Sex rímur.
„Rímur af Þorgrími kóngi og köppum hans, kveðnar af Pétri Ingimundarsyni, Ánanaustum, Reykjavík árið 1870“
„Horfinn meinum hyggju ranns, / harmi duldur er eg …“
„Rímurnar eru uppskrifaðar eftir eiginhandarriti höfundarins, en mansöngvarnir voru aftan við þær, og var tapað eitt blað úr mansöngunum, og vantar því í rímurnar endir á 2. mansöng, 3. mansöng og upphaf á 4. mansöng, og 8. mansöng, sem hafði ekki verið skrifaður í handritið. Miðhúsum, Akranesi 18. mars 1914. Kári S. Sólmundarson (138r).“
Átta rímur.
„Rímur af Jökli Búasyni, ortar af Vigfúsi Gestssyni á Katanesi árið 1849 [svo]“
„Upphaf það eg sögu set, / sólir hlýði tvinna …“
„Rímurnar endað að skrifa 12. nóvember 1913 af K.S.S. í Miðhúsum á Akranesi (151r).“
Fimm rímur.
„Hrakningsríma, kveðin af Magnúsi Jónssyni í Magnússkógum“
„Ása föðurs árgali / eðlið reyni forna …“
„Miðhúsum á Akranesi, 14.12.1921, Kári S. Sólmundarson (156v).“
112 erindi.
„Passaríma Sölva Helgasonar, kveðin af Sæmundi Þorgilssyni“
„Þagnar tjóður flýja fer, / fagni þjóðin kvæðum …“
„Endað að skrifa rímuna 27. mars 1914 af Kára S. Sólmundarsyni í Miðhúsum, Akranesi (159v).“
71 erindi.
„Ríma af Hjálmari og Ingibjörgu, ort af Einari Jónssyni, Elínarhöfða 1870“
„Nú skal hefja nýjan brag, / Norðra bát eg hygg að smíða …“
„Skrifað af Kára S. S. Miðhúsum, Akranesi, endað 28.12.1916 (169v).“
158 erindi.
„Ríma um helstu æviatriði dannibrogsmanns Sigurðar Helgasonar sem var á Jörfa í Kolbeinsstaðahrepp, ort af honum sjálfum“
„Bað mig linna bóla grér, / brags í vinnu færa …“
135 erindi.
„Síðumúlaslagur, um áflog í Síðumúla í Hvítársíðu, ortur af Símoni Bjarnarsyni Dalaskáldi“
„Vanir púli virðar tjá, / vinnu stinnir garpar …“
„Endað að skrifa vísurnar 10. febr. 1918 af Kára S. Sólmundarsyni, Miðhúsum, Akranesi (176v).“
18 erindi.
Pappír.
Keypt 1950 af Kára Sólmundarsyni.