Skráningarfærsla handrits

Lbs 225 4to

Málfræðilegur orða-, orðskviða- og málsháttasamtíningur ; Ísland, 1780

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

Málfræðilegur orða-, orðskviða- og málsháttasamtíningur
Athugasemd

Sumpart úr fornum sögum og með latínskri þýðingu.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 135 blöð (215 mm x 167 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd; skrifari:

Hannes Finnsson

Band

Léreftsband (alband) með pappaspjöldum. Bundið af Páli Pálssyni. Álímdir miðar með hans hendi.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, um 1780.
Ferill

Úr safni Hannesar Finnssonar biskups.

Aðföng

Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 16. september 2022 ; Handritaskrá, 1. b. bls. 180.
Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Páli Pálssyni.

Lýsigögn
×

Lýsigögn