Skráningarfærsla handrits

Lbs 211 4to

Skólaraðir ; Ísland, 1700-1845

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Skólaraðir frá Skálholti
Athugasemd

Skólaraðir frá Skálholti 1746, 1755-1759, 1761-1763 og 1764-1784.

Efnisorð
2
Skólaraðir frá Hólum
Athugasemd

Skólaraðir frá Hólum 1792-1796.

Efnisorð
3
Skólaraðir frá Reykjavík
Athugasemd

Skólaraðir frá Reykjavík 1786-1795, 1797, 1799-1804 (1804 í ljóðum).

Efnisorð
4
Skólaraðir frá Bessastöðum
Athugasemd

Skólaraðir frá Bessastöðum 1806-1814 og 1818-1835 (1806-1807 í ljóðum).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 106 blöð og seðlar (210 mm x 162 mm).
Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur; skrifarar óþekktir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Titill og efnisyfirlit á saurblaði 2r með hendi Páls Pálssonar stúdents.
Band

Léreftsband bundið í kjöl og horn, marmarapappír á pappaspjöldum. Ef til vill bundið af Páli Pálssyni. Álímdir miðar með hans hendi.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, á 18. og 19. öld.
Ferill

Lbs 205-211 4to, úr safni Steingríms Jónssonar biskups.

Aðföng

Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 13. september 2022 ; Handritaskrá, 1. b. bls. 176.
Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Páli Pálssyni.

Lýsigögn
×

Lýsigögn