Manuscript Detail

PDF
PDF

Lbs 453 fol.

Ættartölubækur Ólafs Snóksdalíns, 3. bindi ; Iceland, 1834-1837

Language of Text
Icelandic

Contents

Ættartölubækur Ólafs Snóksdalíns, 3. bindi
Note

Eiginhandarrit.

Á innfestum eyðublöðum og um handritið sjálft eru íaukar með hendi Boga Benediktssonar á Staðarfelli nokkurir, en mest með hendi Jóns dómsstjóra Péturssonar og dr. Hannesar Þorsteinssonar, en talsvert einnig með hendi Jósafats Jónassonar (Steins Dofra), Jóhanns ættfræðings Kristjánssonar og jafnvel fleiri.

Framan við hvert bindi er titilblað og efnisinntak með hendi Páls Pálssonar stúdents.

Aftan við 3. bindi er: 1) Skrá um júbílkennara í Hólabiskupsdæmi. 2) Hirðstjórar. 3) Prestatal í Hólabiskupsdæmi, stutt við skrá Hallgríms Jónssonar djákna. 4) Prófastaröð í Hólabiskupsdæmi frá siðskiptum. 5) Skrá prestakalla í Hólabiskupsdæmi með tekjum þeirra. 6) Biskupar um land allt. 7) Lögmannatal á Íslandi. Og allt er þetta með hendi Ólafs Snóksdalíns sjálfs.

Aftast er með hendi Jóns Péturssonar: 1) Uppskrift ættartalna í Dals- og Hólssóknum undir Eyjafjöllum (eftir síra Jón Jónsson i Holti, gerðra 1808). 2) Ætt Jóhannesar Zoëga. 3) Framan við er skotið inn bréfi frá Indriða Þorkelssyni að Fjalli 1929, með ættarathugunum. Ættartölur úr Mývatnssveit og Ljósavatnshreppi (eftir Ásmund Gíslason að Þverá). 4) Ættir undir Eyjafjöllum. 5) Uppskrift dr. H. Þ. á Stóruvallaætt í Bárðadal (eftir Kristján verslunarmann Jónasarson) og brot úr ættum nokkurra Mývetninga eftir Jóhann Kristjánsson.

Physical Description

Support
Pappír.
No. of leaves
332 blöð (327 mm x 216 mm)
Layout

Binding

Óinnbundið.

History

Origin

Ísland, um 1834-1837.

Provenance

Handritið er að erfðum komið frá Boga Benediktssyni að Staðarfelli.

Acquisition
Lbs 451-477 fol. voru dánargjöf dr. Hannesar Þorsteinssonar til Háskóla Íslands, keypt þaðan af Alþingi til Landsbókasafns og afhent haustið 1938.

Additional

Record History

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 2.

Sigríður H. Jörundsdóttir bætti við skráningu August 02, 2016 ; Halldóra Kristinsdóttir frumskráði June 29, 2015.

Custodial History
Viðgert 1985-1986 af Kristjönu Kristjánsdóttur.

Bibliography

Title: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Editor: Páll Eggert Ólason
Scope: I-III
Metadata
×

Metadata