Skráningarfærsla handrits

KBAdd 35 V 4to

Merking orðanna fjöru-nytjar, ágóði, grasnytjar, grasnautnarhvalur, 1700-1799

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-4v)
Merking orðanna fjöru-nytjar, ágóði, grasnytjar, grasnautnarhvalur
Titill í handriti

Fjörunytjar

Upphaf

Fyrir fjörunytjar meina eg skiljast eigi allur ágóði og gagnsemi ...

Niðurlag

... þar sem hval rak í seinna sinn.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
4 blöð (205-207 mm x 162-166 mm). Autt bl. 4v.
Tölusetning blaða
Blaðmerkt með blýanti á efri spássíu rektósíðna 1-4.
Kveraskipan

Eitt kver, bl. 1-4, 2 tvinn.

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 170-175 mm x 125-130 mm.
  • Línufjöldi er 18-19.
  • Leturflötur afmarkaður með þurroddi.
  • Griporð á versósíðum.
Ástand
  • Blöð hafa gulnað og jaðar er dekkri.
  • Brot eru í blöðum, þar sem þau hafa verið brotin saman.
Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, fljótaskrift, kansellíbrotaskrift í fyrirsögnum og nöfnum.

Skreytingar

Kansellíbrotaskrift í fyrirsögnum.

Band

Handritið er í blárri pappírskápu (220 mm x 190 mm) og safnmark fremst á kápu. Það er varðveitt í öskju (384 mm x 303 mm x 67 mm) ásamt KBAdd 35 I 4to, KBAdd 35 II 4to, KBAdd 35 III 4to, KBAdd 35 IV 4to, KBAdd 35 VI 4to, KBAdd 35 VII 4to KBAdd 35 VIII 4to og KBAdd 35 IX 4to.

Stimpill frá Konungsbókhlöðunni í Kaupmannahöfn er á neðri spássíu á bl. 1r.

Fylgigögn
Með í öskju liggja sjö lausir seðlar (122 mm x 297 mm), þar á meðal:
  • Seðill sem á stendur: V (VIa) | 4 blade | Fjöru-nytjar etc. með blýanti.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter, bls. 440.

Skv. Catalogus criticus et historico-literarius codicum, 1832, s. 26-27 er höfundur handritsins Björn Halldórsson.

Ferill
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Viðgerðarsaga

Christine Bronér og Mette Jakobsen, gerðu við handritið í september 1995 til apríl 1996. Handritið er í IX hlutum og er hver í sérstakri kápu nema III er í tveimur og IV í nýju bandi. Allt í einni öskju og fylgdi dót úr gömlu bandi. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á NorS Sprogsamlinger frá 1995-1996.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn