„Sagan af Rafni Sveinbjarnarsyni vestfirðingi sem að Sturli hinn fróði lætur fylgja Íslendingasögum miklu“
„Maður hét Sveinbjörn son Bárðar svarta …“
„... meðan hann lifði, og lýkur þar sögunni“
Tvö kver:
Með hendi Péturs Jónssonar í Svefneyjum, kansellíbrotaskrift. Sama hönd og í KBAdd 31 4to.
Fyrirsögn er feitletruð og örlítið flúruð. Einnig fyrsta línan (bl. 1r).
Pennaflúraðir upphafsstafur á bl. 1r.
Band frá 18. öld (206 mm x 163 mm x 5 mm). Mjúk pappaspjöld klædd pappír með lituðu flæðimynstri. Safnmarksmiði framan á kápu. Tveir safnmarksmiðar á fremra spjaldblaði. Handritið liggur í öskju (227 mm x 177 mm x 15 mm).
Handritið var skrifað á Íslandi og tímasett til 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter, bls. 438.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 25. júlí 2024.
Kristian Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1900 (Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter, bls. 438 (nr. 65)).
Niels Borring og Morten Grønbech, gerðu við handritið í ágúst til nóvember 1995. Ekkert var hreyft við bandi, en handritið er í nýrri öskju. Nákvæm lýsing á ljósmyndun, viðgerð og kveraskiptingu fylgdi með.
Svart-hvítar ljósmyndir á NorS Sprogsamlinger frá 1995-1996.