Skráningarfærsla handrits

KBAdd 30 II 4to

Uppkast að KBAdd 30 I 4to, 1700-1799

Tungumál textans
latína (aðal); íslenska

Innihald

(1r-10v)
Uppkast að KBAdd 30 I 4to
Vensl

AM 269 8vo inniheldur sama verk í annarri útfærslu.

Upphaf

Austurátt. Locus qvidam in ...

Niðurlag

... vent mori posse.

Athugasemd

Óheilt, vantar framan af og endar eftir O.

Á forsíðu KBAdd 30 I 4to kemur fram að Jón Ólafsson frá Grunnavík telji Grím Thorkelín höfund verksins, en hann hafi tekið þetta eintak árið 1775 til eigin afnota. Hins vegar skrifar Grímur Thorkelin á spássíu að Eggert Ólafsson sé upprunalegur höfundur, en hann hafi aukið við og endurbætt (sjá bl. 1r).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
8 blöð (193-196 mm x 118-124 mm) + 6 blöð (163 mm x 99-100 mm). Auð bl. 1r, 11-14.
Tölusetning blaða
  • Blaðmerkt með blýanti á efri spássíu 1-10.
  • Blaðmerkt með blýanti á neðri spássíu 24-33.
Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-14 (9+14, 10+13, 11+12), 3 tvinn.

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 167-185 mm x 108-113 mm og 147 mm x 96 mm.
  • Línufjöldi er 30-33.
Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, sprettskrift og kansellísbrotaskrift í áhersluorðum.

Band

Band frá 1995 (221 mm x 191 mm x 27 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi. Safnmark á kili.

KBAdd 30 II 4to er í sama bandi og KBAdd 30 I 4to, KBAdd 30 III 4to og KBAdd 30 IV 4to.

Fylgigögn

Tvö auð blöð fyrir framan handritið sjálft, safnmark á fremra blaði.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter, bls. 437-438.

Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Viðgerðarsaga

Niels Borring gerði við í apríl til ágúst 1995. Handritið er í nýlegu bandi. Nákvæm lýsing á ljósmyndun, viðgerð og kverskiptingu fylgdi með.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á NorS Sprogsamlinger frá 1995-1996.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn