Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

KBAdd 1 fol.

Ártíðaskrá Vestfirðinga ; Ísland, 1290-1310

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-7v)
Ártíðaskrá Vestfirðinga
Athugasemd

Inniheldur dagatal frá Íslandi, einnig notað sem minningargrein.

Bl. 7 er varðveitt í eldri öskju með eldra bandi.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
ii + 7 + ii blöð (265-274 mm x 198-220 mm).
Tölusetning blaða
Blaðmerking með blýanti 1-7, síðari tíma viðbót.
Kveraskipan

Eitt kver og laust blað:

  • Kver I: bl. 1-6, 3 tvinn.
  • Laust blað, bl. 7.

Umbrot

  • Þrír dálkar.
  • Leturflötur er ca 201-298 mm x 166-174 mm.
  • Línufjöldi er ca 30-37.

Ástand
  • Sum blöð eru dökk (sérstaklega bl. 1 og 7r).
  • Blöð eru stökk og brotthætt.
  • Blettótt.
  • Bleksmitun.
  • Gat á bl. 3.
Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, textaskrift.

Skreytingar

Mynd af Jesú á krossinum, ásamt Maríu mey og Jóhannesi(?) sitthvoru megin (bl. 7v).

Upphafsstafir skreyttir með plöntuformum, sem laufformum og/eða blómum, rauðir, grænir og bláir (bl. 1r, 1v, 2r, 2v, 3r, 3v, 4r, 4v, 5r, 5v, 6r, 6v).

Litað inn í stafi með rauðum lit (sjá t.d. 4v).

Víða notað rautt, grænt og blátt blek (bl. 5r).

Töflur (bl. 7r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Ýmsar viðbætur:
  • Með hendi fra ca 1400 eða yngri: Arnþrúðar Eyjólfsdóttur 5v.
  • Með hendi frá 15. öld: Artið Þorbjargar Guðmundardóttur, Artið Guðina Oddssonar, Ingibjörg Svarthöfðadóttir 6v.
  • Með hendi frá 16 öld: Þrettándi dagur, Geisladagur, Miður vetur, Pálsmessa, Um þorra bl. 1r; Kyndilmessa, Pétursmessa, Hlaupársmessa 1v; Frá 1836 Anno domini . dxxx vj. þridia ... 2r; Jónsmessa, Alþing 3v; Maríumessa, Seljumannamessa, Þorláksmessa, Ólafsmessa fyrri og Miðsumar 4r; Ólafsmessa seinni, Maríumessa fyrri, Höfuðdagur Johannis Baptistæ, Varnaðar ár 4v; Maríumessa seinni, Krossmessa 5r; Vetrakomutafla 5v; Maríumessa, Sesseljumessa, Clemensmessa, Katrínar messa 6r; Jóladagur 6v.
Band

Band frá árunum 1994-1995 (283 mm x 230 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, leður á kili og hornum. Límmiði með safnmarki á kili. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi. Stimpill frá Konungsbókhlöðunni í Kaupmannahöfn á bl. 1v.

Handritið liggur í ljósgrárri öskju (álímt efni) (302 mm x 244 mm x 23 mm). Límmiði á kili: Add 1 fol.

Eldra band (287 mm x 224 mm x 6 mm). Pappaspjöld klædd brúnum marmarapappír, leður á kili og hornum. Á aftari spjaldi er áfast umslag. Límmiði framan á kápu og innan á fremra spjaldi með safnmarki.

Bandið er varðveitt í eldri öskju (303 mm x 234 mm x 19 mm). Leður á kili með gyllingu: merki Konunglega bókasafnins og safnmerki: Add 1,2°

Fylgigögn

Seðill (160-163 mm x 191 mm), á honum stendur: Et islandsk Calendarium paa Pergamentblade.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur það til aldamóta 1300 (Katalog 1900, bls. 425).

Hannes Finnsson biskup telur þó að elsti hlutinn sé skrifaður fyrir 1274 en annað á milli 1320-1330. (Íslenzkar ártíðaskrár bls. 115).

Ferill
Hannes Finnsson biskup, fékk handritið frá Magnúsi Ketilssyni sýslumanni í Dalasýslu. (Íslenzkar ártíðaskrár bls. 115).
Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Viðgerðarsaga

Morten Grønbech (forvarsla), Christine Bronér (saumur) og Mette Jakobsen (band) gerðu við handritið í ágúst 1994 til apríl 1995. Handritið er í nýju bandi og nýrri öskju. Gamalt band fylgdi í eldri og vandaðri öskju. Lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á NorS Sprogsamlinger frá 1994.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn