Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 133 8vo

Sálma- og kvæðasafn ; Ísland, 1600-1762

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðfjöldi
ii + 310 + i blað (160 mm x 96 mm). Auð blöð: 17, 216, 221v-224v, 250v, 261v og 305r-310v.
Tölusetning blaða
Gömul blaðmerking 1-310 (1r-310r).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 132-133 mm x 76-80 mm.
  • Griporð.
  • Línufjöldi er 21-32.

Ástand
  • Handrit hefur verið vitlaust innbundið. Rétt röð blaða: 1-176, 195-200, 177-194, 201-310.
Skrifarar og skrift
Þrjár hendur, ein hönd að mestu ; skrifarar:

I. : 1r-16v: óþekktur skrifari.

II. : 18r-258r: óþekktur skrifari.

III. : 259r-304v: óþekktur skrifari.

Skreytingar

Rauðir upphafsstafir víða á bl. 2r-16v.

Bókahnútur á bl. 1r og 16v.

Heiti daga í fyrirsögnum á bl. 2r-16v er skrifað með rauðu bleki.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á bl. 216r er skrifað nafnið Brynjólfur Jónsson.

Band

Yngra band (168 mm x 106 mm x 50 mm).

Pappaspjöld kædd marmarapappír með leðurkili og hornum.

Fylgigögn
Hefti sem inniheldur efnisskrá.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1600-1762.
Ferill

Á fremra saurblaði stendur: Bók þessa er aðskiljanlegt inniheldur í bundum stíl, hefur undirskrifaður dýru verði keypta, sem sæmde af systur sinni elskulegri Sesselju ÞórðardótturTeigi þann 25. júní 1762 Undir þessu er svo fangamark Gísla Thorlacius rektors.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skráði 15. nóvember 2011 ; Guðný Hrafnkelsdóttir frumskráði, 28. júní 2010 ; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2010.

Notaskrá

Höfundur: Páll Eggert Ólason
Titill: Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi
Lýsigögn
×

Lýsigögn