Hagþenkir getinn, fæddur og fóstraður í Kaupinhafn anno 1737 í aprili mánuði. (1r)
„Öllum skynsömum …“
„… Tantæ molis erit glacialem condere gentem.“
Kom síðar út á prenti. Sjá Hagþenkir 1996.
Pappír.
Vatnsmerki.
Einn dálkur.
Leturflötur er 108-260 mm x 118-150 mm.
Leturflötur er afmarkaður með broti á blaði.
Á spássíum eru fyrirsagnir þeirra fjögurra hluta sem handritið skiptist í. 1. hluti: Um ungdómsins lærdóm (4r), 2. hluti: Um bókalærdóm (10v), 3. hluti: Um studia utanlands (24v), 4. hluti: Um nytsamlega brúkan alls þessa á Íslandi (30v).
Sködduð blöð: 5, 7, 12, 15, 41 og aftara saurblað.
Á eftir blöðum 9, 10, 14, 22 og 35 eru blaðbrotsblöð.
Afbrigðileg blöð: 3 (320 mm x 180 mm), 15 (310 mm x 200 mm), 25 (200 mm x 185 mm) og 31 (128 mm x 190 mm).
Jón Ólafsson, fljótaskrift og latínuletur, eiginhandarrit.
Formálsorð Jóns Ólafssonar á fremra saurblaði ritað um 1770.
Spássíugreinar á víð og dreif.
Band frá því um miðja 18. öld (335 mm x 210 mm x 50 mm).
Pappakápa.Slitið.
Á kápu stendur: „No. 4. Hagþenkir.“
JS 83 fol hafði að geyma fjórar ritgerðir um framför Íslands eftir jafn marga einstaklinga og var því skipt upp í fjórar einingar: JS 83 I fol. JS 83 II fol. JS 83 III fol. JS 83 IV fol.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 468.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir bætti við færsluna, April 25, 2022 ; Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, November 28, 2011 ; Halldóra Kristinsdóttir fór yfir skráningu, October 09, 2012 ; Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, November 28, 2011 ; Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði, March 26, 2010Athugað 2010